Hýsingarmiðstöð rísi í Vogum 27. maí 2010 21:09 Frá undirskrift viljayfirlýsingarinnar.
Í dag var skrifað undir viljayfirlýsingu milli Midgard hf og Sveitarfélagsins Voga um byggingu tölvuhýsingarmiðstöðvar í Vogum. Gert er ráð fyrir að byggja 11 hýsingareiningar á næstu árum auk þjónustubyggingar, samtals um 6.000 m2. Í tilkynningu segir að fyrsti áfangi verði tekinn í notkun fyrir lok ársins 2010. Hýsingarmiðstöðin verður byggð í samræmi við alþjóðlegar kröfur og mun m.a. nýta græna orku landsins, kalt vatnið og stöðugt loftslag. „Verkefnið hefur verið í undirbúningi frá því í byrjun árs 2007 og er fjármögnun fyrsta áfanga nú lokið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í sumar. Fjárfesting vegna uppbyggingar í Vogum verður um 5 milljarðar króna gangi áætlanir eftir. Gert er ráð fyrir að um 25-30 tæknimenntaðir starfsmenn muni starfa beint við fullbyggða hýsingarmiðstöðina, en margfeldisáhrif vegna starfa á Íslandi gætu orðið mjög mikil," segir ennfremur en hýsingarmiðstöðin fær orkuna frá HS Orku á Suðurnesjum. Fullbygð mun miðstöðin þurfa á 10 til 12 megawöttum að halda. Þá segir að nú þegar sé búið að ganga frá viðskiptasamningum sem munu tryggja rekstur fyrsta áfanga hýsingarmiðstöðvarinnar strax frá upphafi. Meðal þeirra fyrirtækja sem munu nýta sér þjónustu Midgard frá byrjun eru Orange Business Services og Basis ehf. Mikilvægt skref í atvinnuuppbyggingu „Í dag er stigið mikilvægt skref í atvinnuuppbyggingu í Vogum sem miðar að aukinni fjölbreytni starfa. Hýsingarmiðstöð Miðgarðs verður hryggjarstykkið í aukinni starfsemi í tækni og upplýsingaþjónustu í sveitarfélaginu til framtíðar, en fyrir er félag í Vogum á sviði upplýsingatækni sem hefur margfaldast að umfangi undanfarin ár," segir Hörður Harðarson, formaður bæjarráðs. „Við teljum því sóknartækifærin liggja í þessum geira." „Orange Business Services mun vera með öflugan tengipunkt í hýsingarmiðstöð Midgard strax í upphafi rekstrar og mun tengjast viðskipta-gagnaneti Orange Business Services, sem nær yfir 220 lönd og er stærsta sinnar tegundar í heiminum. Með tilkomu svona sérhæfðrar hýsingarmiðstöðar mun skapast tækifæri fyrir aukinn vöxt og þjónustu Orange Business Services á Íslandi," Segir Örvar Sigurðsson framkvæmdastjóri Orange Business Services á Íslandi. „Hýsingarmiðstöðin mun skapa ný og spennandi tækifæri í rekstri Basis. Basis hefur fram til þessa boðið viðskiptavinum sínum upp á hýsingu tölvukerfa í sínum eigin sal en plássleysi var farið að standa í vegi fyrir stækkun fyrirtækisins og auknu framboði á þjónustu. Með hýsingu hjá Midgard verða stækkunarmöguleikar Basis hinsvegar nánast ótakmarkaðir auk þess sem rekstraröryggið verður enn meira en áður. Það er ljóst að tilkoma Midgard mun gera Basis kleift að einbeita sér enn betur að sinni kjarnastarfsemi sem er hýsing, rekstur og þjónusta við tölvukerfi," segir Snorri Páll Jónsson framkvæmdastjóri Basis.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira