Kópavogur: Bæjarstjórn samþykkir ársreikning 13. maí 2010 10:44 ´MYND/GVA
Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2009 var samþykktur á fundi bæjarstjórnar Kópavogs í gær. Í tilkynningu frá bænum segir að þær breytingar hafi verið gerðar á ársreikningnum milli umræðna að færðar voru til eignar lóðir og lendur sem leigutekjur fást af, í samræmi við breyttar reglur reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga. „Þetta þýðir að eigið fé í efnahagsreikningi Kópavogsbæjar, hvort sem litið er til A- eða B-hluta, er um 4,5 milljörðum hærri fjárhæð í árslok 2009 en áður var reiknað með, og er því samtals um 10,4 milljarðar. Eiginfjárhlutfallið er þar með um 20%," segir einnig. Þá er bent á að eins og áður hafi komið fram setji þeir erfiðleikar sem verið hafa á alþjóðlegum og innlendum fjármálamörkuðum mark sitt á fjárhag Kópavogsbæjar vegna ársins 2009. „Þrátt fyrir erfitt rekstrarár, kostnaðarhækkanir og fleira, hefur þó með hagræðingu og útsjónarsemi tekist að halda uppi þjónustustigi í bænum." Lóðaskilin meiri en úthlutanir á árinu Rekstrarafgangur af A-hluta var um 1,5 milljarðar að undanskildum fjármagnskostnaði, afskriftum og gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga. Sé hins vegar A og B-hluti ársreikningsins skoðaður er niðurstaðan neikvæð upp á um 4 milljarða. „Þar skiptir mestu máli neikvæðir fjármagnsliðir upp á um 3,9 milljarða, bakfærðar tekjur vegna lóðaskila upp á um 900 milljónir og gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga upp á um 415 milljónir. Vert er að geta þess að lóðaúthlutanir framan af ári gengu vel og námu tekjur vegna þeirra um 2,5 milljörðum króna. Þegar upp var staðið voru lóðaskilin hins vegar meiri," segir að lokum í tilkynningunni.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Sjá meira