Viðskipti innlent

Dráttarvextir komnir niður í 11,5%

Seðlabankinn hefur lækkað dráttarvexti um eina prósentu og eru þeir því komnir niður í 11.5%. Þessir vextir fóru hæst í 26,5% í lok ársins 2008 eða skömmu eftir bankahrunið.

Á vefsíðu Seðlabankans hefur verið birt tilkynnin um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. janúar 2011 verða vextir sem hér segir:

Vextir af óverðtryggðum lánum lækka í 5,55% - (voru 5,75%).

Vextir verðtryggðra lána haldast óbreyttir og verða áfram 4,70%.

Vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,70% - (voru 3,85%).

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um eina prósentu við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 8. desember sl. og því lækka dráttarvextir úr 12,50% í 11,50% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2011.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×