Viðskipti innlent

Eins árs loðnan lofar góðu

Mælingar á eins árs loðnu lofa mjög góðu.Fréttablaðið/Hari
Mælingar á eins árs loðnu lofa mjög góðu.Fréttablaðið/Hari

Hafrannsóknastofnunin leggur til að heildaraflamark loðnu á yfirstandandi vertíð verði samtals tvö hundruð þúsund tonn. Stofnunin mun kanna hvort tilefni sé til að endurskoða tillögurnar eftir mælingu á loðnustofninum eftir áramót.

Mælingar á loðnunni fóru fram seint í september og fram í byrjun þessa mánaðar. Loðna fannst víða, bæði eins árs ungloðna og fullorðin tveggja og þriggja ára loðna. Hún hrygnir í mars á næsta ári. Eins árs loðnan fannst í Grænlandssundi og við Grænland, að sögn Hafrannsóknastofnunarinnar.

Landssamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, benti á það í gær að mjög lítið hefði sést af eins árs loðnu á síðustu árum. Ástand hennar nú muni hins vegar vera mjög gott, bæði meðallengd og meðalþyngd yfir meðallagi. Sýni sem tekin hafi verið í síðustu mælingu bendi til að tíu prósent eins árs loðnu hrygni næsta vor. Það er meira en sést hefur í fyrri mælingum á þessum árstíma.

„Miðað við framangreindar mælingar, að teknu tilliti til náttúrulegra affalla, þyngdaraukningar fram að hrygningu og að skilin verði eftir fjögur hundruð þúsund tonn til hrygningar, reiknast veiðistofn loðnu 198 þúsund tonn,“ segir LÍÚ.- jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×