Bakþankar

Júlía Margrét Alexandersdóttir: Hugsanlegt hjálpræði

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar
Ég hef alltaf átt erfitt með að velja mér þann stjórnmálaflokk sem ég vil kjósa. Ég hef stundum íhugað að skila auðu en hryllt við að atkvæði mitt yrði þá gjaldfellt með ógildum seðlum. Þess vegna hef ég yfirleitt endað á því að kjósa einhvern flokk - úllen dúllen doff. Ég er þetta "óákveðna" atkvæði, allt fram á síðustu stundu. Það er nóg fyrir mig að hitta stjórnmálamann með ljóta nælu á kjörstað til að snúast hugur.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur stundum heillað. Jafnfljótt og ég hef verið komin á þá skoðun að kjósa flokkinn hefur einhver, yfirleitt kona, úr þeirra röðum, náð að sópa atkvæði mínu af borðinu. Ung sjálfsstæðiskona í óþægilegum skyrtum og jökkum svo hún líkist sem mest karlmanni í Kastljósinu er jafn sorgleg sjón og Siggi Sigurjóns með hárkollu og handtösku í Spaugstofunni. Og auðvitað enn sorglegra þegar hún hefur upp raust sína og ver og réttlætir launamun kynjanna.

Ástæðan fyrir því að ég hef ekki náð að bindast Samfylkingunni er einfaldlega sú að ég skil stundum ekki það sem Samfylkingarfólk segir. Á vondum dögum hljómar orðræða þeirra eins og ársskýrsla félagsmiðstöðvar í úthverfi og tungumál sem er flokksfélögum tamt; "stefnumótun" og "stoðir í velferðarbrúnna", hljómar engu betur í mínum eyrum en "neikvætt eigiðfé" og "skuldsett yfirtaka" útrásaráranna. Þannig næ ég ekki að tengja, þrátt fyrir einlægan ásetning flokksins um að tala til almennings. Þeir ná allavega fyrri hluta markmiðsins: Að tala

Framsóknarflokkinn hefur mér eiginlega aldrei dottið í hug að kjósa, það hefur svolítið verið eins og að byrja með pabba bestu vinkonu sinnar eða fara á fyllerí með rótarýklúbbnum í hverfinu. Ég varð þó pínu hugsi með atkvæðaseðilinn í höndunum síðast þar sem Sigmundur Davíð hafði stuttu áður hrifið mig með borgarskipulagshugmyndum. Einn álitlegur haus á móti hjörðinni dugði þó ekki.

Vinstri-grænir hafa átt auðvelt með að ná mér. Því þakka ég mikið til Katrínu Jakobsdóttur sem mér finnst blátt áfram, dugleg og óspillt. Ég hef stundum hugsað mér hvernig hinn fullkomni stjórnmálamaður væri og séð hana fyrir mér. Ef ég væir jafn hrifin af stefnumálum flokksins og Katrínu væri valið auðvelt.

Besti flokkurinn hljómaði í fyrstu sem Ástþór Magnús eða Snorri Ásmunds borgarstjórnarkosninganna í vor. Ég, og þeir sem hingað til hafa verið óáreiðanlegir kjósendur og oft hrifist af hugmyndinni að skila auðu þegar allt annað virðist bregðast, líður eins og flokkur Jóns Gnarr sé upplagt tækifæri til að lýsa yfir frati á úrsérgengnu flokkakerfi sem varð gjaldþrota á sama tíma og útrásin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×