Atvinnuleysið mældist 6,7% á fjórða ársfjórðungi 13. janúar 2010 09:10
Á fjórða ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 7,9% hjá körlum og 5,4% hjá konum. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 16,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2008 til fjórða ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 4.600 manns. Á fjórða ársfjórðungi 2009 var atvinnuleysi 6,6% á höfuðborgarsvæðinu en 7% utan þess. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fjórða ársfjórðungi 2009 höfðu um 1.700 manns verið atvinnulausir svo lengi, eða um 14% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2008 um 200 manns. Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2009 var 166.500 manns og fækkaði um 8.500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.500 manns sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 77,3%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru alls 182.400 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 81,5%. Atvinnuþátttaka karla var 85,3% og kvenna 77,4%. Á fjórða ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 42,9 klst. hjá körlum en 34,5 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,6 klst. en 23 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi. Á fjórða ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 39,3 klst., 43,8 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 45 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 21,7 klst.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira