Gjaldeyrisforðinn styrkist vegna sölunnar á FIH 20. september 2010 12:00
Búast má við að gjaldeyrisforði Seðlabankans verði kominn í 600 milljarða króna um áramótin, en forðinn styrkist vegna sölu á danska FIH bankanum. Seðlabankastjóri segir að styrking forðans hafi jákvæð áhrif á gengi krónunnar. Eins og greint var frá í gær hefur verið gengið frá sölu á danska bankanum FIH. Kaupendurnir eru tveir danskir lífeyrissjóðir og sænskt tryggingafélag og fjárfestingasjóður. Söluverð er 670 milljónir evra, eða sem nemur 103 milljörðum króna. Bankinn var veðsettur Seðlabanka Íslands vegna 500 milljóna evra láns sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi í hruninu haustið 2008. Danski bankinn var á forræði skilanefndar Kaupþings. Tæpir 40 milljarðar króna verða staðgreiddir en hitt greiðist á næstu fjórum árum, en hvort kaupverðið skilar sér að fullu fer eftir þróun á eignum bankans. Ágætis líkur eru því á að Seðlabankinn endurheimti að fullu það lán sem hann veitti Kaupþingi fyrir tveimur árum. Ekki liggur enn fyrir hve mikið kemur inn í þrotabú Kaupþings vegna sölunnar, en það fer eftir framtíðarverðmæti bankans. Ef kaupverðið verður greitt að fullu má gera ráð fyrir að um 26 milljarðar króna endurheimtist í þrotabú Kaupþings, þegar búið verður að greiða 77 milljarða króna lánið frá Seðlabankanum. Salan stækkar gjaldeyrisforða Seðlabankans um sem nemur 250 milljónum evra í kringum áramótin. Búast má við að gjaldeyrisforðinn verði kominn upp í rúma 600 milljarða í byrjun næsta árs. Sterkur gjaldeyrisforði er eitt af undirstöðuatriðunum í efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Rökin fyrir mikilvægi þess að hafa stóran gjaldeyrisforða, eru að hluta til þau að það auki trúverðugleika Íslands út á við og styðji við gengi krónunnar. Heimir Már Pétursson, fréttamaður, spurði Má Guðmundsson seðlabankastjóra um áhrif sölunnar á FIH á gengi krónunnar í gær. Seðlabanki svaraði því til að hún styrkist ekki beint við það, því viðskiptin fari ekki í gegnum gjaldeyrismarkaðinn beint, en þegar gjaldeyrisforðinn styrkist auki það tiltrú á Íslandi og það gæti því óbeint styrkt krónuna.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira