Fons tapaði 42 milljörðum króna Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. febrúar 2010 14:30 Pálmi Haraldsson. Fons var í eigu Pálma og Jóhannesar Kristinssonar, viðskiptafélaga hans.
Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, tapaði 42 milljörðum króna á árinu 2008. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins. Fons er nú gjaldþrota, en kröfur í þrotabú félagsins nema rúmlega fjörutíu milljörðum króna. Fons fór úr því að eiga Íslandsmet í hagnaði yfir í gjaldþrot á innan við ári. Í ágúst 2008 hagnaðist Fons um 75 milljarða króna á því að selja hlut sinn í verslunarkeðjunni Iceland í Bretlandi. „Þetta er sennilega Íslandsmet í hagnaði," sagði Pálmi Haraldsson í samtali við Fréttablaðið hinn 16. ágúst 2008 þegar greint var frá sölunni á hlutnum í Iceland og raunar fleiri fyrirtækjum í Bretlandi sem Fons átti hlut í. Stærstur hluti söluhagnaðarins fór hins vegar í að greiða niður lán við Landsbankann, en eins og fréttastofa hefur greint frá var það félagið Stytta ehf., sem er í eigu Stoða og Blackstar Ltd. á eynni Mön, sem keypti 29 prósenta hlut Pálma á 430 milljónir punda. Blackstar Ltd. er í eigu þriggja lykilstjórnenda Iceland-keðjunnar. Langstærstur hluti kaupverðs Styttu á hlutnum í Iceland var yfirtaka á lánum sem félag Pálma fékk hjá Landsbankanum. Eins og fréttastofa hefur greint frá ætlar Óskar Sigurðsson, lögmaður og skiptastjóri þrotabús Fons, að stefna Pálma Haraldssyni og Jóhannesi Kristinssyni, eigendum Fons, vegna arðgreiðslu upp á 4,2 milljarða króna frá Fons til Matthew Holding árið 2007, félags sem tvímenningarnir áttu og skráð er í Lúxemborg. Arðgreiðslan var vegna góðs hagnaðar á árinu 2006 en hún var greidd út í ágúst 2007. Dregið var á lánalínu til að greiða arðinn út og tók Fons tímabundið 4,2 milljarða króna lán hjá Landsbankanum fyrir arðgreiðslunni, sem síðan var greitt að fullu. Óskar telur að ekki hafi verið forsendur fyrir arðgreiðslunni, en Pálmi er ekki sama sinnis og segist hafa látið lögfræðinga yfirfara arðgreiðsluna og að allar forsendur hafi verið fyrir henni. Auk arðgreiðslunnar vill Óskar rifta tólf samningum sem Fons gerði fyrir bankahrunið, svo sem lána- og gjaldmiðlaskiptasamningum.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira