Evran heldur áfram að veikjast 24. febrúar 2010 12:22
Enn heldur evran áfram að veikjast gagnvart helstu myntum. Í gærdag var lækkunin m.a. rakin til þess að væntingar fyrirtækja í Þýskalandi minnkuðu umfram spár.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á hinn bóginn virðist Bandaríkjadollar þessa dagana ekki vera eins viðkvæmur fyrir neikvæðum hagtölum og evran en í gær var bandaríska væntingavísitalan birt sem leiddi í ljós að svartsýni á meðal bandaríska neytenda jókst töluvert nú í febrúar frá fyrri mánuði.Þrátt fyrir að ekki sé eins mikið horft nú til Grikklands og á undanförnum vikum er ljóst að enn megi rekja veikingu evrunnar til ótta við að ekki sé búið taka almennilega á skuldavanda Grikklands og annarra ríkja sem illa standa innan evrusamstarfsins. Jafnframt er talið líklegt að Seðlabanki Bandaríkjanna komi til með að draga úr lausafé sem mun hafa jákvæð áhrif á gengi Bandaríkjadollars. Nú þegar þetta er ritað (Kl: 11:00) stendur EUR/USD krossinn í 1,355 en fyrir rúmum mánuði síðan stóð hann í 1,45.Engin viðskipti hafa verið á millibankamarkaði með gjaldeyri hér á landi síðan í byrjun síðustu viku og hefur gengi krónunnar gagnvart evru því verið stöðugt á þeim tíma. Eins og kunnugt er ákvarðast gengi evru gagnvart krónu á millibankamarkaði. Það gerir það að verkum að þegar mikil breyting er á evrunni og þá í átt til veikingar leiðir það til þess að krónan fylgir og veikist gagnvart öðrum myntum.Evran stendur nú í 174,3 krónum en um áramótin var hún í 179,9 krónum. Þetta jafngildir því að krónan hafi hækkað um 3,2% gagnvart evru á tímabilinu. Á hinn bóginn stendur Bandaríkjadollar í 128,5 krónum og hefur krónan lækkað um 2,8% gagnvart dollaranum frá áramótum.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira