Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fjölgar um 6 prósent

Yfir 100 fyrirtæki, meðal annars byggingafyrirtæki, fóru á hausinn í mars.
Yfir 100 fyrirtæki, meðal annars byggingafyrirtæki, fóru á hausinn í mars.

Í mars 2010 voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 100 fyrirtæki í mars 2009, sem jafngildir 6% fjölgun milli ára.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og í bálknum Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 292 sem er tæplega 12% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 261 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Um 30% færri einkahlutafélög voru stofnuð í mars samanborið við sama tíma í fyrra, eða 164 ný félög. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 469 fyrstu þrjá mánuði ársins sem er tæplega 32% fækkun frá sama tímabili árið 2009 þegar 690 ný einkahlutafélög voru skráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×