Fengu margfalt hærra tilboð en í fyrra 29. mars 2010 05:00 Vífilfell er einn þriggja íslenskra eigenda hollenska drykkjavöruframleiðandans Refresco.
Erlendir fjölmiðlar segja kaup breska einkaframtakssjóðsins 3i Group á fimmtungshlut í hollenska drykkjavöruframleiðandanum Refresco fyrir um 84 milljónir evra, fjórtán milljarða íslenskra króna, í fyrradag með umfangsmestu fjárfestingum eftir kreppuna. Þetta er í annað skiptið sem 3i Group kemur að Refresco. Það átti félagið um þriggja ára skeið en seldi til FL Group (nú Stoða), Kaupþings og Vífilfells árið 2006. Upp úr því tók Refresco yfir fjölda drykkjarframleiðenda í í Evrópu og er velta fyrirtækisins nú tvöfalt meiri en á síðustu þremur árum. Refresco var sett í söluferli árið 2008 en kreppan setti strik í þær fyrirætlanir og tóku íslensku fjárfestarnir ákvörðun vorið 2009 að selja ekki. Verðið sem fékkst fyrir hlutinn nú mun vera margfalt hærra en boðið var í hlutinn í fyrra. 3i Group greiðir kaupverðið úr nýjum sjóði félagsins, sem í eru 1,2 milljarðar evra, jafnvirði 213 milljarða króna. Þriðjungur fjárins í sjóðnum kemur frá fjárfestum en afgangurinn er samsafn eldri sjóða. Breska viðskiptablaðið Financial Times segir afrek að loka sjóðnum við núverandi aðstæður á fjármálamörkuðum. Eftir viðskiptin munu Stoðir, Kaupþing og Vífilfell eiga 62 prósenta hlut í Refresco.- jab
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Sjá meira