Greining spáir 0,5 prósentustiga stýrivaxtalækkun 6. ágúst 2010 10:41
Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti bankans um 0,50 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 18. ágúst næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að við þetta lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana í 6,0% og vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 7,5%. Heldur Seðlabankinn þar með áfram vaxtalækkunarferli sínu en við síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar 23. júní síðastliðinn ákvað nefndin að lækka vexti um 0,5 prósentur. Má geta þess að þá vildu tveir af fimm nefndarmönnum taka aðra ákvörðun og lagði annar til 0,25 prósentna vaxtalækkun og hinn 0,75 prósentna lækkun. Sá sem vildi meiri lækkun hélt því fram að best væri að bregðast við áhrif gjaldeyriskreppunnar með gjaldeyrishöftum og nota lægri vexti til að bregðast við fjármagnskreppunni. Líkt og í mörgum fyrri yfirlýsingum lýsti peningastefnunefndin því yfir eftir ákvörðun sína síðast að héldist gengi krónunnar stöðugt eða styrktist, og verðbólga hjaðnaði eins og spáð er, ættu forsendur fyrir því að draga smám saman úr peningalegu aðhaldi að vera áfram til staðar. Gengi krónunnar er nú nánast hið sama og það var við vaxtaákvörðun nefndarinnar 23. júní síðastliðinn. Verðbólgan hefur hins vegar haldið áfram að hjaðna og ögn hraðar en reiknað var með. Við síðustu vaxtaákvörðun stóð verðbólgan í 7,5% en er nú 4,8%. Þegar ekki er tekið tillit til áhrifa óbeinna skatta minnkaði verðbólgan á þessu tímabili úr 6,1% niður í 4,0%. Líkur eru á því að verðbólgan hjaðni hratt á næstunni og má reikna með því að hún verði komin niður í 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrir mitt næsta ár og fyrr ef frá eru talin áhrif óbeinna skatta. Reikna má fastlega með því nú að peningastefnunefndin endurtaki yfirlýsingu sína um að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. "Má í því ljósi og með hliðsjón af erlendri fjármögnun vænta þess að nefndin lækki vexti bankans áfram á næstunni, en þó með þeim höftum sem áætlun um afnám gjaldeyrishafta fyrir lok efnahagsáætlunarinnar í ágúst 2011 setur vaxtastefnunni. Spáum við því að nefndin verði komin með veðlánavexti bankans niður í 6,0% í lok árs en á árinu eru eftir fjórir vaxtaákvörðunardagar," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira