Einn virtasti hagfræðingur heims telur framtíð evru í uppnámi Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. október 2010 12:09 Stiglitz er nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og prófessor við Chicago-háskóla.
Joseph Stiglitz, sem er einn virtasti hagfræðingur í heiminum, telur framtíð evrunnar sem sjálfstæðs gjaldmiðils í uppnámi og að hagkerfi ríkja Evrópu verði lengi að koma sér upp úr kreppunni. Joseph Stiglitz er nóbelsverðlaunahafi í hagfræði en hann starfaði um tíma sem aðalhagfræðingur Alþjóðabankans. Í breska dagblaðinu Telegraph er umfjöllun um endurútgáfu bókar hans Freefall sem fjallar um kreppuna sem hófst með undirmálslánum í Bandaríkjunum. Stiglitz segir að evran sem gjaldmiðill þjóni ekki hagsmunum ríkja sem glíma við viðskiptahalla og skuldir. Stiglitz segir að þjóðir sem deili gjaldmiðli gefi frá sér sveigjanleika til að takast á við efnahagslægðir, sveigjanleika sem fylgja sjálfstæðum myntum. Ummæli Stiglitz, sem var efnahagsráðgjafi Bill Clintons bandaríkjaforseta, eru athyglisverð vegna þess að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur haldið því fram að íslenska krónan hafi hjálpað Íslendingum mikið að komast út úr kreppunni. Þá hafa fleiri tekið þessi rök á lofti og þá sérstaklega andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Á móti kemur hafa aðrir bent á að tímabundinn ávinningur þess að hafa sjálfstæða litla mynt í efnahagslægð sé ekki jafn mikilvægur og langtímaávinningur þess að hafa stöðugleika í gjaldmiðilsmálum, sem litlir sjálfstæðir gjaldmiðlar eins og krónan hafi ekki. Stiglitz segir í bókinni að vegna stöðu ríkja eins og Írlands, Portúgals og Grikklands verði þrýstingur á evruna ef til vill meiri en evrusvæðið þolir. Stiglitz telur það síðan koma til greina að Þýskaland segi sig úr Myntbandalagi Evrópu og taki upp þýska markið að nýju. Stiglitz segir að það hefði í för með sér að evran myndi lækka til samræmis við þarfir þeirra ríkja sem eru með stóran viðskiptahalla og veika samkeppnisstöðu.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira