Stefnt að hrossaútflutningi í ágúst 25. júní 2010 06:30 Mynd/Stefán
Stefnt er að því að hefja hrossaútflutning á nýjan leik um miðjan ágúst segir Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda. Það verði þó ekki gert nema heilsufar hrossanna sé komið í fullkomið lag en útflutningur hefur legið niðri vegna hóstaveiki sem herjað hefur á velflest hross hér á landi undanfarið. Þetta var niðurstaða fundar hagsmunaaðila sem haldinn var í gær. „Það sem er að gerast núna er að þeim fer fjölgandi hrossunum sem eru að ná sér,“ sagði Kristinn í gær og kvaðst vera bjartsýnni en áður. Spurður um stöðu hrossaræktenda í landinu sagði Kristinn að góður gangur væri í folaldafæðingum og menn færu óhikað með hryssur sínar undir hesta. „En staða fjármála hjá þeim sem eru einkum að vinna við hross og hafa tekjur af þeim er mjög slæm. Margt af þessu fólki er ungt og með miklar fjárhagsskuldbindingar. Sumir eru að byggja upp og aðrir með dýra staði á leigu en hafa litlar sem engar tekjur.“ Hann sagði þrjár kynbótasýningar nú fyrirhugaðar. Búið sé að skrá tæp 200 hross í þær. Þegar væri búið að sýna um 240 hross í sumar, en á sama tíma landsmótsárið 2008 hefði verið búið að sýna um 1.500 hross á sama tíma. Kristinn sagði að það væru skýr skilaboð frá Matvælastofnun að aðgát yrði höfð við lengri hestaferðir sem nú væru að hefjast og héraðsdýralæknar fylgdust með hrossunum. -jss
Mest lesið Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Sjá meira