Meðal Íslendingur á 2,3 milljónir inn á bankareikningi 25. júní 2010 06:47
Innlán íslenskra heimila í bönkunum nema nú 734 milljörðum króna. Þetta samsvarar því að hver Íslendingur eigi að jafnaði 2,3 milljónir króna inn á bankareikningi. Fjallað er um innlán í bankakerfinu í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heildarinnlán í bankakerfinu, ásamt seðlum og mynt í umferð, námu í lok mars 1.582 milljörðum Til samanburðar var peningamagn á þennan kvarða mælt 1.622 milljarða kr. í lok ársins 2008 og hafði þá vaxið um nærri 400 milljarða kr. það ár. Ef litið er til skiptingar innlána eftir eigendum þeirra kemur upp úr kafinu að íslensk heimili voru stærstu eigendur innlána í lok mars, en þau áttu þá ríflega 734 milljarða kr. í innlánum hjá bönkunum. Innlán heimilanna jukust um nærri 104 milljarða kr. strax eftir bankahrunið, en heldur hefur dregið úr þeim síðan. Heimilin, ásamt lífeyrissjóðunum, eiga því einna drýgstan þátt í þeirri aukningu innlána sem varð á árinu 2008. Lífeyrissjóðirnir hafa frá hruni margir hverjir haft eins mikið af eignum sínum í innlánum og lög leyfa, en sjóðirnir mega halda allt að 10% eigna sinna í sjóði og innstæðum. Í marslok áttu sjóðirnir tæpa 148 milljarða kr. í innlánum í bönkunum, en til samanburðar var hrein eign þeirra til greiðslu lífeyris 1.830 milljarðar kr. á sama tíma.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira