Almenningur tapaði 80 milljörðum króna 25. september 2010 06:00
Tap 56 þúsund einstaklinga vegna glataðrar hlutabréfaeignar í bönkunum og nokkrum öðrum almenningshlutafélögum sem fóru í þrot í framhaldi bankahrunsins nam samtals 183 milljörðum króna. Tap fólks var mismikið. Langflestir, um fjörutíu þúsund, töpuðu fjárhæðum upp að einni milljón króna. Tæplega átta þúsund töpuðu frá einni til þremur milljónum og 3.400 manns töpuðu á bilinu þremur til sex milljónum. Þessar upplýsingar er að finna í gögnum sem Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lét taka saman í byrjun ársins. Í þeim er greint á milli þeirra sem áttu meira eða minna en 50 milljónir í hlutabréfum. Fram kemur að 286 einstaklingar áttu samtals 103 milljarða króna í hlutabréfum. 96 þeirra eru fæddir fyrir 1944. Heildarupphæð eignar þeirra nam rúmum 15 milljörðum. Hinir 190 áttu samtals 88 milljarða í hlutabréfum. Pétur Blöndal segist hafa látið taka þessar upplýsingar saman til að sýna fram á að fjármagnseigendur hefðu, öfugt við það sem oft er haldið fram, tapað miklu í hruninu. „Þetta sýnir að næstum 60 þúsund manns sem, áttu samtals um 80 milljarða og að meðaltali eina og hálfa milljón, töpuðu sínu." Pétur setur þessa fjárhæð í samhengi við umræðuna um gengislánin. Þau hafi hækkað um ámóta upphæð frá gengisfalli krónunnar. „Þetta tap slagar vel upp í þessar auknu byrðar lántakenda sem mikið hefur verið fjallað um. Þetta er því mikið áfall en enginn talar um það." Fyrirtækin sem hlutabréfaeignin náði til eru Glitnir, Kaupþing, Landsbankinn, Straumur, Atorka, Avion, Bakkavör, Exista og TM. Verðbréfaskráning Íslands annaðist útreikningana. Frá því að útreikningarinar voru gerðir hafa hluta- og stofnbréf í fleiri fyrirtækjum orðið verðlaus og fjárhæðir því hækkað.bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Sjá meira