Viðskipti innlent

Spænskum farþegum skemmtiferðaskipa fjölgaði mest

Samtals komu 68.033 farþegar með 73 skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur í sumar og er það nánast sami fjöldi og kom í fyrra. Flestir voru ferðamennirnir frá Þýskalandi og hafði þeim fjölgað um rúm 10% frá árinu áður.

Þetta kemur fram á vefsíðu Faxaflóahafna. Þar segir að mesta aukningin var hinns vegar í ferðalöngum frá Spáni en með skemmtiferðaskipum í sumar komu 4681 Spánverji og er það um það bil 3800 fleiri en árið 2009.

Þessa aukningu má fyrst og fremst rekja til þess að í sumar var farþegum flogið beint til Íslands en skipið Gran Mistral skipti um farþega hér. Ítölskum farþegum fjölgaði einnig verulega, eða um ca. 50%, en ítölsku útgerðirnar COSTA og MSC sigla nú í auknum mæli á norðurslóðir.

Á næsta ári bendir ýmislegt til þess að heimsóknum skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur fækki, en farþegafjöldi verði svipaður og í ár.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×