Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa lækkaði um 0,5% milli mánaða

Vísitala kaupmáttar launa í október 2010 er 107,2 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,6%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að launavísitala í október 2010 er 381,8 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,0%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×