Viðskipti innlent

Eignir lánafyrirtækja hækka milli mánaða

Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.170 milljörðum kr. í lok apríl og hækkuðu um 5,0 milljarða kr. í mánuðinum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að innstæður í Seðlabankanum námu rúmlega 43 milljarða kr. og hækkuðu um 3,3 milljarða kr. á milli mánaða og hafa hækkað um 39,6 milljarða kr. frá því í apríl 2009.

Kröfur á lánastofnanir hækkuðu um 3,1 milljarði kr. í apríl og námu 83,4 milljarða kr. Útlán og markaðsverðbréf námu 1.025 milljörðum kr. og lækkuðu um rúman milljarð í apríl.

Til ýmissa lánafyrirtækja teljast Íbúðalánasjóður, fjárfestingarbankar, eignarleigur, greiðslukortafyrirtæki og fjárfestingarlánasjóðir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×