Ístak semur um byggingu Búðarhálsvirkjunar 22. október 2010 17:29 Mynd úr safni.
Landsvirkjun og Ístak hf. undirrituðu í dag samning um byggingu Búðarhálsvirkjunar. Verkið var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu og voru tilboð opnuð þann 26. ágúst 2010. Sjö aðilar buðu í verkið og var Ístak hf. með lægsta boð í allt verkið að teknu tilliti til afslátta. Heildarfjárhæð samningsins nemur rúmum 9,8 milljörðum króna að meðtöldum virðisaukaskatti eða 77,56% af kostnaðaráætlun. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í vetur og er áætlað að virkjunin verði komin í rekstur fyrir árslok 2013. Áætlað er að heildarfjöldi ársverka sem skapist á Íslandi vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar verði á milli 600 til 700 yfir allan framkvæmdatímann. Þegar flest verður á vinnustað verða þar um 300 manns. Verkið skiptist í þrjá verkhluta. Verkhluti 11 felst í gerð Sporðöldustíflu. Um er að ræða jarðvegsstíflu í tveimur hlutum, 1100 m og 170 m löngum, og er stíflan hæst um 25 m. Verkhluti 14 felst í að sprengja og styrkja aðrennslisgöng virkjunarinnar. Göngin eru skeifulaga, tæpir 15 m á hæð og rúmir 11 m á breidd og lengd þeirra er um 4 km. Verkhluti 15 felst í byggingu á stöðvarhúsi og inntaksmannvirkjum ásamt greftri frárennslisskurðar.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fleiri fréttir ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Sjá meira