Greining spáði nákvæmlega um verðbólgu í 11-27% tilvika 18. febrúar 2010 10:52
Greining Íslandsbanka hefur spáð nákvæmlega fyrir um verðbólguna á Íslandi í 11% tilvika á síðustu tíu árum. Í 27% tilvika hefur spáin verið í eða undir 0,1 prósentustigi frá hinu raunverulega vísitölugildi.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að verðbólguspár hafa verið stór þáttur í starfi greiningadeilda hér á landi sem og í löndunum umhverfis okkur. Mikið er horft til þessara spáa enda spila verðbólguvæntingar stórt hlutverk á fjármálamarkaði. Í þessu ljósi er áhugavert að horfa í gæði þessara spáa.„Greining Íslandsbanka hefur langa reynslu í gerð þessara spáa. Þegar litið er til síðustu tíu ára þ.e. tímabilsins frá upphafi árs 2000 til loka árs í fyrra og verðbólguspár okkar fyrir það tímabil metnar kemur eftirfarandi í ljós," segir í Morgunkorninu.„Í 11% tilfella höfum við spáð rétt fyrir um vísitöluna. Í 27% tilfella hefur spáin verið í eða undir 0,1 prósentustigi frá hinu raunverulega vísitölugildi. Aðeins einu sinni á þessum tíu árum var spáskekkjan yfir einu prósentustigi en það var í apríl 2008 þegar við spáðum 2,0% hækkun vísitölu neysluverðs á milli mánaða en raunin varð 3,4%."Ennfremur segir að spáskekkjan er meiri þegar verðbólgan er meiri. Þannig var meðalspáskekkjan 0,25 prósentustig á þessu tíu ára tímabili en yfir síðustu tvö ár hefur spáskekkjan verið 0,35 prósentustig. Rifja má upp að verðbólgan fór í 18,6% í upphafi síðastliðins árs og að meðaltali var verðbólgan 12,4% á þessu tveggja ára tímabili.„Spárnar ná í 92% tilfella að segja rétt til um áttina, þ.e. spá hækkun þegar það verður hækkun og lækkun þegar það verður lækkun. Einhver kann að segja að það sé nú ekki erfitt á Íslandi þar sem verðbólgan virðist óstöðvandi og vísitalan gerir nær ekkert annað er að hækka á milli mánaða. Í því sambandi má benda á að í 16% tilfella lækkaði vísitalan á milli mánaða á þessu tíu ára tímabili enda er það nokkuð algengt í útsölumánuðum," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira