Starfsfólk skilanefnda fékk 4,3 milljarða í laun 18. febrúar 2010 06:00 frá kröfuhafafundi Landsbankans Talverður munur var á launum starfsfólks skilanefnda gömlu bankanna í fyrra og kollega þeirra sem gera upp bú fallinna banka í Bretlandi.
Skilanefndir gömlu bankanna greiddu rúma 4,3 milljarða í laun og tengd gjöld á síðasta ári. Launakostnaður var mestur í gamla Landsbankanum, eða 3,4 milljarðar króna. Lægstur var hann í Glitni, eða þrjú hundruð milljónir króna. Hjá skilanefndum bankanna störfuðu um 260 manns í fyrra. Flestir unnu hjá gamla Landsbankanum eða 143. Um helmingur þeirra, eða sjötíu, var hér á landi en 65 í Bretlandi. Aðrir voru í Amsterdam í Hollandi og hjá dótturfélagi gamla bankans í Kanada. Fæstir voru hjá Glitni, eða 22 að meðaltali. Erfitt er að reikna út meðallaun starfsmanna skilanefnda vegna mismunandi utanumhalds. Í sumum tilvikum gefa skilanefndir og aðrir uppgjörsaðilar upp starfsmannafjölda en í öðrum unnar vinnustundir eða meðaltal starfsmanna yfir árið. Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis, segir starfsmannhóp bankans að mestu samsettan af sérfræðingum. Ýmis önnur störf, svo sem bakvinnsla og bókhaldsvinna er unnin af starfsmönnum Íslandsbanka samkvæmt þjónustusamningi. Páll Benediktsson, talsmaður skilanefndar Landsbankans, segir launakostnað í Bretlandi lita bækur bankans enda séu laun ytra mun hærri en hér. Hann vill ekki gefa upp launatölur en bendir á að kjörin hér séu sambærileg við önnur störf í bankageiranum. Sama máli gegnir um Kaupþing. Hæstu laun starfsmanna fjármálafyrirtækja samkvæmt launatöflu frá 1. janúar 2009 og er birt á vef Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hljóða upp á 422.435 krónur á mánuði. Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær eru skilanefndirnar sjálfar og slitastjórnir ekki á meðal almennra starfsmanna. Þær teljast til sérfræðinga og falla greiðslur til þeirra í lið með öðrum sérfræðikostnaði í sundurliðun á rekstrarkostnaði við uppgjör bankanna. Talsmenn allra skilanefnda bankanna benda á að kostnaðurinn hafi verið hár á fyrri hluta árs en úr honum dregið eftir því sem liðið hafi á árið. Gert er ráð fyrir að hann verði lægri á þessu ári. Sé rekstrarkostnaður skoðaður sem hlutfall af brúttóeignum skilanefnda í stýringu er hann sambærilegur hjá Kaupþingi og Glitni, eða 0,24 til 0,25 prósent. Landsbankinn gefur upplýsingarnar upp að loknum kröfuhafafundi í næstu viku. - jab
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira