Gylfi: Ríkið gæti mótmælt 18. febrúar 2010 12:42 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Viðskiptaráðherra segir að ríkið gæti mótmælt of háum launum skilanefndarmanna sem einn af kröfuhöfum bankanna. Hann vill þó ekki fullyrða um að slíkt sé í burðarliðnum. Greint var frá því í gær að mánaðarlaun skilanefndarmanna og slitastjórna í Glitni, Kaupþingi og gamla Landsbankanum námu allt frá þremur til fimm milljónum króna á mann í fyrra. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segir að eftirlitið sé hjá kröfuhöfunum og þeir geti mótmælt launagreiðslum skilanefndarmanna þar sem þeir greiði launin og dómstólar svo úrskurðað í þeim efnum. Hins vegar geti ríkið sem er einn kröfuhafa bankanna einnig haft eitthvað um málið að segja. „Sem kröfuhafi þá getur ríkið mótmælt," segir Gylfi. „Ég vil ekkert fullyrða um það enda stendur það ekki upp á mig að taka ákvörðun um það," segir hann aðspurður hvort hann telji að það gerist enda heyri það undir fjármálaráðuneytið. Telur að mannlegt eðli muni ekki breytast við hrunið Við spurðum viðskiptaráðherra einnig um skoðun hans á málum Hlyns Jónssonar, formanns slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans, sem Stöð 2 greindi frá síðustu helgi. En Hlynur skrifar reikninga fyrir nýstofnað lögfræðifyrirtæki sitt Nýsúlu, sendir þá á slitastjórnirnar, skrifar upp á þá og borgar svo sem formaður slitastjórnanna. „Ég ætla ekki að reyna að skera úr um það en það er einfaldlega þannig að ef menn telja að einhver sé vanhæfur til þess að sitja í slitastjórn eða skilanefnd þá getur dómstóll vikið honum. Þannig að það verður einhver að bera fram kröfu um það til þess að fá úr því skorið," segir Gylfi. Aðspurður hvort hann óttist að menn fari að misnota aðstöðu sína segir Gylfi: „Auðvitað óttast ég það enda verður allt gert til að koma í veg fyrir það bæði með breytingum á lögum og reglum og breyttri hegðan eftirlitstofnanna. Þannig að það er allt gert til þess að koma í veg fyrir það, en ég á ekki von á því að mannlegt eðli breytist mikið við hrunið."
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira