Launamunur karla og kvenna hefur minnkað nokkuð 18. febrúar 2010 09:02
Í nýju hagtíðindahefti kemur meðal annars fram að á árunum 2000-2007 eru konur með lægri laun en karlar en hlutfallslegur launamunur hefur lækkað á tímabilinu. Árið 2000 voru konur með 24,8% lægra reglulegt tímakaup en karlar en munurinn var kominn í 15,9% árið 2007.Ef horft er til heildartímakaups voru konur með 24,9% lægri laun en karlar árið 2000 en árið 2007 var munurinn kominn niður í 18,5%.Út er komið hagtíðindaheftið Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007. Í því er greint frá helstu niðurstöðum úr rannsókn á launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði. Rannsóknin er byggð á gagnasöfnum Hagstofunnar og var framkvæmd í kjölfar samkomulags á milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Hagstofu Íslands í tengslum við kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í febrúar 2008.Niðurstöður byggjast á tæplega 185 þúsund athugunum á launum einstaklinga sem störfuðu á almennum vinnumarkaði á árunum 2000-2007. Skýrsluna í heild sinni má nálgast á vef Hagstofu Íslands.Þegar valdir skýringarþættir hafa verið leiðréttir með aðferðum tölfræðinnar mælist launamunur á bilinu 9,2-10,3% fyrir tímabilið 2000-2007. Þegar sundurliðun á launamun er beitt á þær niðurstöður stendur eftir 7,3% óútskýrður launamunur fyrir sömu ár, en þá hefur verið tekið tillit til þeirra þátta sem notaðir eru til skýringa á launamun kynjanna.Þótt niðurstöðum úr greiningum sem fjalla um leiðréttan launamun beri að taka með fyrirvara benda þær allar til þess að það halli á laun kvenna í samanburði við laun karla.Einnig eru skoðuð áhrif ólíkra skýringarþátta fyrir konur og karla hvert í sínu lagi. Þá kemur í ljós að öflun háskólaprófs hefur meiri áhrif til hækkunar á laun karla en laun kvenna. Þá hefur fjöldi barna á heimili jákvæð áhrif á laun karla en neikvæð áhrif á laun kvenna, og því yngri sem börnin eru þeim mun neikvæðari áhrif hafa þau á reglulegt tímakaup kvenna.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira