Kaupþing rannsakar 20 aflandsfélög vegna tugmilljarða viðskipta Sigríður Mogensen skrifar 19. mars 2010 18:35
Skilanefnd Kaupþings hefur tekið rúmlega 20 félög og félagasamstæður í þekktum skattaskjólum til sérstakrar athugunar vegna tugmilljarða viðskipta þeirra við gamla Kaupþing. Fjöldi félaga innan hverrar samstæðu er á bilinu tvö til 250 og eru þau staðsett á Bresku Jómfrúareyjum, Ermasundseyjum, á Kýpur, í Panama og Lúxemborg. Eigendur margra þeirra eru Íslendingar búsettir erlendis. Umfangsmikil rannsóknarvinna á háttsemi gamla Kaupþings hófst af hálfu skilanefndar bankans strax þegar hún tók til starfa í október 2008. Þetta kemur fram í skýrslu fyrir kröfuhafa. Tilgangurinn er að rekja slóð fjármuna og skoða útlán bankans fyrir hrun með það að markmiði að endurheimta fjármuni. Hefur skilanefndin notið aðstoðar sérfræðinga í réttarrannsóknum frá Grant Thornton í Bretlandi og erlendra lögmanna. Rannsóknin hefur meðal annars beinst að lánum til tengdra aðila og stærri viðskiptavina bankans, óreglulegum viðskiptum og viðskiptum við eða í gegnum dótturfélög erlendis. Skilanefndin hefur nú þegar tekið yfir 20 félög og félagasamstæður til sérstakrar athugunar vegna viðskipta þeirra við bankann fyrir hrun. Fjöldi félaga innan sömu samstæðu er á bilinu tvö til 250, en í sumum tilvikum er um skúffufélög að ræða, sem fengu tugi milljarða að láni hjá bankanum. Félögin eru í flestum tilvikum staðsett í þekktum skattaskjólum - á Bresku Jómfrúareyjunum, Ermasundseyjunum, á Kýpur, í Panama og Lúxemborg, að því er heimildir fréttastofu herma. Eigendurnir eru margir búsettir erlendis, en oft Íslendingar. Vinnan við að rekja slóð fjármuna er gríðarlega flókin en ásamt því að vera skattaskjól eru mörg þessara landa þekkt fyrir takmarkað gegnsæi, þannig að erfitt getur verið að nálgast upplýsingar um félögin. Í mörgum tilfellum verður slóðin köld í Lúxemborg og erfitt að nálgast frekari gögn og upplýsingar.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Sjá meira