Hagnaður Landsvirkjunar nam 24,4 milljörðum í fyrra 19. mars 2010 13:50
Hagnaður Landsvirkjunnar á síðasta ári nam 193 milljónum dollara sem svarar til um 24,4 milljarða króna á núverandi gengi. Samkvæmt tilkynningu um uppgjör ársins nam handbært fé frá rekstri 197 milljónum dollara eða um 24,9 milljörðum króna á núverandi gengi Vegna alþjóðlegrar lánsfjárkreppu ákvað Landsvirkjun að gæta aðhalds í rekstri, draga úr fjárfestingum og gæta að lausafjárstýringu. Heildareignir Landsvirkjunar nema 4,8 milljörðum dollara eða um 608 milljörðum króna á núverandi gengi. Skuldir nema 3,2 milljörðum dollara eða sem nemur um 410 milljörðum króna. Eigið fé Landsvirkjunar var 1,56 milljarðar dollara eða sem svarar til um 198 milljarða króna á núverandi gengi. Eiginfjárhlutfall var 32,6%. Rekstrartekjur lækkuðu um 152,2 milljónir dollara á milli áranna 2008 og 2009 sem skýrist einkum af lægra orkuverði til álfyrirtækja vegna lækkunar á álverði á heimsmarkaði auk þess sem tekjur af orkusölu á innlendum markaði lækkuðu á milli ára í Bandaríkjadölum vegna lækkunar á gengi íslensku krónunnar. Tekjufærðar innleystar áhættuvarnir tengdar álverði námu 42,5 milljónum dollara en árið á undan nam gjaldfærsla vegna slíkra áhættuvarna 54,8 milljónum dollara. Að teknu tilliti til áhættuvarna nemur lækkun tekna frá fyrra ári 54,9 milljónum dollara. Fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld námu 95,1 milljón dollara sem skýrist aðallega af hækkun á gangvirði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði auk lægri neikvæðs gjaldeyrismunar. Gangvirðisbreytingar og gengistap eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 2,46% á árinu 2009 en þeir voru um 4,51% árið áður. Horfur á árinu eru góðar. Álverð er viðunandi um þessar mundir þó óvissa sé um þróun næstu missera. Þá er vaxtastig á helstu mörkuðum afar lágt sem nýtist Landsvirkjun vel þar sem mikill meirihluti lána ber breytilega vexti. Því standa vonir til að sjóðsmyndun verði góð um sinn. Afkoma fyrirtækisins mun sem fyrr ráðast að miklu leyti af gangvirðisbreytingum á innbyggðum afleiðum og gengisþróun. Fyrirtækið hefur aðgang að lausafé og lánum sem ásamt fé frá rekstri mun tryggja að fyrirtækið getur mætt núverandi skuldbindingum sínum inn á árið 2012. Stöðugt er unnið að endurfjármögnun og eru stjórnendur þess fullvissir að henni verði lokið fyrir þann tíma. Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar stórframkvæmdir nema að fjármögnun sé tryggð en stöðugt er unnið að endurfjármögnun eldri lána og fjármögnun nýrra orkuverkefna. Fyrirspurnir og heimsóknir frá hugsanlegum orkukaupendum sýna að eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun er mikil og vonast fyrirtækið eftir því að það skili sér í hærra orkuverði í nýjum sölusamningum.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira