Sólarkísilverksmiðja enn á teikniborðinu 22. mars 2010 05:00 Tímabundnar aðgerðir kanadíska fyrirtækisins Timminco setja ekki skarð í áætlanir um byggingu sólarkísilverksmiðju í Ölfusinu sem á að ræsa eftir fimm ár, segja forsvarsmenn verkefnisins.
Kanadíska fyrirtækið Timminco Limited hefur hætt framleiðslu á sólarkísilflögum tímabundið og mun blása lífi í hana þegar eftirspurn eykst. „Við eigum miklar birgðir," segir John Fenger, framkvæmdastjóri Timminco, í samtali við Fréttablaðið. Tíminn verði notaður til að auka gæði afurða fyrirtækisins. Aðgerðin muni ekki setja skarð í áætlanir enda um aðeins hluta af heildarumfangi Timminco að ræða, að hans sögn. Timminco vinnur með nýsköpunarfyrirtækinu Stokki Energy að byggingu kísilmálm- og sólarkísilverksmiðju, sem áformað er að reisa rétt vestan við Þorlákshöfn í Ölfusi. Fyrir mánuði undirrituðu þau samning við Orkuveitu Reykjavíkur um orkusölu til verksmiðjunnar til tuttugu ára. Öll orkan á að koma frá Hverahlíðarvirkjun. Framkvæmdir við verksmiðjuna eru ekki komnar langt á veg en lóð hefur verið tekin frá fyrir hana í Ölfusi, að sögn Ólafs Áka Ragnarssonar bæjarstjóra. Sveitarfélagið hefur ekki lagt fé í verkefnið. Fundað verður um framkvæmdir henni tengdri á mánudag. Hann bætir við að engar breytingar hafi verið gerðar á áætlunum. Undir það tekur Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Stokks Energy. Samkvæmt uppgjöri Timminco sem birt var í vikunni tapaði fyrirtækið 69,4 milljónum kanadískra dala, jafnvirði rúmra 8,7 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Verð hlutabréfa í fyrirtækinu hefur lækkað mikið. Fréttablaðið sagði frá því fyrir mánuði að neikvæð þróun fyrirtækisins gæti haft áhrif á rekstrarhæfi þess. Erlendir fjármálasérfræðingar hafa verið á sama máli í vikunni. Fyrirtækið lokaði einu verksmiðju sinni í maí í fyrra og sagði upp hluta starfsfólks. Þar eru þrír ofnar til kísilmálmframleiðslu sem geta framleitt 45-50 þúsund tonn af kísilmálmi á ári. Framleiðsla hófst þar að nýju í fyrrahaust. John, sem tók við starfi framkvæmdastjóra í byrjun síðasta árs, segir tapið í fyrra tilkomið vegna nauðsynlegra afskrifta, svo sem á fastafjármunum og birgðum. „Að öðru leyti erum við á lygnum sjó," segir hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira