Héraðsdómur skilgreinir hagnað sem launatekjur 22. mars 2010 14:33
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur tekið undir með yfirskattanefnd og úrskurðað að hagnað af viðskiptum með eignarhluti í fyrirtækjum beri að skilgreina sem launatekjur en ekki fjármagnstekjuskatt.Þórður Már Jóhannesson höfðaði málið en hann vildi að viðurkennt yrði með dómi að honum hafi verið rétt í framtali sínu gjaldárið 2005 að telja fram hagnað að fjárhæð 47.600.000 krónur af sölu eignarhluta í Straumi hf. sem fjármagnstekjur í 10% skatti samkvæmt lögum um tekjuskatt.Í dóminum segir að helstu málavextir eru þeir að Þórður Már Jóhannesson var forstjóri Fjárfestingarfélagsins Straums hf. Þann 13. mars 2003 tók hann að láni hjá Íslandsbanka 44.100.000 krónur til kaupa á hlutabréfum að nafnvirði 14.000.000 króna í Straumi hf. á genginu 3,15.Þórður Már skuldbatt sig sama dag, með söluréttarsamningi við Straum til að eiga hlutabréfin í tvö ár gegn því að geta selt hlutina á tímabilinu frá 15. til 25. mars 2005 á genginu sem hann keypti bréfin á, 3,15. Hann veðsetti Íslandsbanka jafnframt hlutabréfin til tryggingar greiðslu skuldarinnar. Þann 18. júní 2004 gerðu Þórður Már og Straumur hf. nýjan samning sem heimilaði honum að selja hlutabréfin. Fékk hann 91.700.000 krónur fyrir hlutabréfin og greiddi upp lánið hjá Íslandsbanka.„Ríkisskattstjóri hóf á árinu 2006 rannsókn á kaupréttar- og söluréttarsamningum stefnanda (Þórði Má), með tilliti til skattlagningar. Með úrskurði ríkisskattstjóra 29. október 2007 var stefnanda endurákvarðaður skattur af hagnaðinum af sölu hlutabréfanna í júní 2004 sem launagreiðslur, og lagt á skattinn 25% álag. Með því var tekjuskattsstofninn hækkaður um 47.600.000 krónur en fjármagnstekjustofn var lækkaður um sömu fjárhæð. Var stefnanda gert að greiða 20.577.543 krónur samkvæmt skattbreytingaseðli," segir í dóminum„Stefnandi kærði úrskurðinn til yfirskattanefndar, sem kvað upp úrskurð sinn nr. 117/2009, þann 27. maí 2009. Yfirskattanefnd staðfesti niðurstöðu ríkisskattstjóra að öðru leyti en því að 25% álagið var fellt niður og jafnframt felldur niður tilfærður arður að fjárhæð 4.900.000 kr."Fram kemur í dóminum að söluréttarsamningar voru nýlunda á árinu 2003. Engin sérákvæði höfðu verið leidd í lög um skattalega meðferð þeirra. Aftur á móti hafði verið leitt í lög sérákvæði um skattalega meðferð kaupréttarsamninga. Er þar kveðið á um að mismunur á kaupum á hlutabréfum samkvæmt slíkum samningi og gangverði bréfanna þegar kaupréttur er nýttur skuli skattlagður sem launatekjur.Dómurinn tekur undir með ríkisskattstjóra og yfirskattanefnd um að líta verði svo á að söluréttarsamningurinn og tengdir samningar hafi í skattalegu tilliti falið í sér nýtingu stefnanda á kauprétti að umræddum hlutabréfum í Straumi hf. sem hann öðlaðist í raun á árinu 2003 á tilgreindu gengi.Í samræmi við það bar stefnanda að telja fram til skattskyldra launatekna í skattframtali árið 2005 mismun á því kaupverði hlutabréfanna 44.100.000 krónur, sem lagt var til grundvallar ákvörðun söluverðs í söluréttarsamningi aðila frá 13. mars 2003 og gangverði bréfanna þegar kaupréttur var nýttur hinn 18. júní 2004.Segir einnig í dóminum að hlutabréfin voru keypt fyrir lánsfé. Stefnandi tók í eigin nafni lán fyrir kaupunum, leit því ekki á þau sem endurgjald fyrir vinnu eða gjöf til sín og gaf þau ekki upp til skatts sem starfstengd hlunnindi á þeim tíma. Stefnanda hlaut þó að vera ljóst að hlutabréfaeignin eða ávinningurinn af henni, væru skattskyld hlunnindi samkvæmt tekjuskattslögum.
Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Sjá meira