Viðskipti innlent

Heimildargjald fellt niður hjá Íslandsbanka

Íslandsbanki fellir niður heimildargjald (viðskiptagjald) á tékkareikningum fyrirtækja og einstaklinga frá og með 21. mars 2010.

Í tilkynningu segir að heimildargjald er lagt á ónýtta yfirdráttarheimild en gjaldið hefur hingað til einungis verið lagt á reikninga hjá þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem eru ekki í aðal vildarþjónustu bankans og eru með yfirdráttarheimild yfir ákveðnum viðmiðunarmörkum.

Einungis lítill hluti einstaklinga og fyrirtækja í viðskiptum við bankann hefur verið að greiða heimildargjald og var því ákveðið að fella það alveg niður.

Niðurfelling á heimildargjaldi er liður í endurskoðun gjaldskrár hjá Íslandsbanka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×