Viðskipti innlent

Kröfuhafi hafnar tillögu Reykjaneshafnar

Einn af 20 kröfuhöfum Reykjaneshafnar hefur hafnað tillögu stjórnenda hafnarinnar um frestun á greiðslum og afborgunum af lánum fram til maí á næsta ári. Fundað verður um málið þann 20. desember n.k.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að þann 3. nóvember 2010 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir „kröfuhafar") um að gjaldföllnum greiðslum og dráttarvöxtum yrði bætt við höfuðstól og samningum og fjármálagerningum skilmálabreytt þannig að næsta greiðsla yrði ekki fyrir 1. maí 2011 ásamt því að ýmsar kvaðir voru settar á Reykjaneshöfn á þessum tíma sbr. nánar efni tillögunnar.

Einn kröfuhafi hefur lýst því að sér sé ómögulegt að samþykkja tillöguna sökum þeirra laga sem gilda um starfsemi viðkomandi kröfuhafa og var tillögunni í kjölfarið formlega breytt á þann veg að tekið var tillit til aðstæðna viðkomandi. Breyting á tillögu Reykjaneshafnar var tilkynnt formlega í kauphöll þann 25. nóvember 2010.

Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa átján samþykkt tillögu Reykjaneshafnar með þeirri breytingu sem var gerð á henni þann 25. nóvember s.l. Telst tillögunni því hafnað.

Í ljósi þessarar niðurstöðu býður stjórn Reykjaneshafnar kröfuhöfum til fundar föstudaginn 10. desember n.k. klukkan 10:00 í sal G á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu athugasemdum sem komið hafa fram við tillögu Reykjaneshafnar og óskað eftir umræðum um möguleg næstu skref.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×