Íslandsbanki gerir samstarfssamning við DnB Nor 1. desember 2010 13:31 Stefan Sigurdsson, Birna Einarsdottir, Joergen Hjemdal og Spiros Allan.
Eignastýring Íslandsbanka hefur gert samstarfssamning við DnB NOR Asset Management en fyrirtækið er dótturfyrirtæki norska bankans DnB NOR. Samstarfið nær til dreifingar á sjóðum og þjónustu til allra viðskiptavina, þ.e. fagfjárfesta, einstaklinga og fyrirtækja. DnB NOR Asset Management er traust og íhaldssamt eignastýringarfyrirtæki með um 60 milljarða evra í stýringu. DnB NOR, sem er stærsti banki Noregs og sá annar stærsti á Norðurlöndum, er að þriðjungi í eigu norska ríkisins, með 260 milljarða evra efnahagsreikning. Eignastýring Íslandsbanka hefur leitað samstarfsaðila á Norðurlöndunum síðast liðið ár til þess að byggja upp erlent vöruframboð sitt og var DnB NOR efst á lista varðandi ákjósanlega samstarfsaðila. Samstarfið er hugsað til langs tíma enda takmarka gjaldeyrishöft nýfjárfestingar erlendis um þessar mundir. Þrátt fyrir höftin geta sparifjáreigendur og fagfjárfestar sem eiga erlendar eignir nýtt sér sjóði og þjónustu DnB NOR Asset Managment í gegnum Íslandsbanka þar sem þeir hafa rétt til endurfjárfestingar. Eignastýring Íslandsbanka hefur undanfarin 12 ár átt í farsælu og góðu samstarfi við bandaríska eignastýringarfyrirtækið The Vanguard Group sem er annað stærsta eignastýringarfyrirtæki heims. Sjóðir og þjónusta DNB NOR Asset Management er afar góð viðbót við vöruframboð Íslandsbanka á sviði erlendra verðbréfa og þjónustu við erlend eignasöfn. „Við höfum fylgst vel með íslenska markaðnum á síðustu árum og við teljum að með samstarfinu nú höfum við fundið ákjósanlegan eignastýringaraðila á markaðnum til þess að byggja upp árangursríkt samstarf til langs tíma. Við teljum að þær vörur sem við bjóðum muni henta þörfum íslenskra fjárfesta og sparifjáreigenda. Samstarfið við Íslandsbanka er mikilvægt skref í áætlunum okkar um vöxt alþjóðlega," segir Jörgen Hjemdal, Framkvæmdarstjóri hjá DnB NOR Asset Management. „Við erum mjög ánægð og stolt af þessu samstarfi við DnB NOR Asset Management og lítum á það sem mikilvægt skref í uppbyggingu Eignastýringar Íslandsbanka. Við teljum að íslenskir sparifjáreigendur og fjárfestar vilji áhættudreifa eignum sínum utan Íslands í meira mæli en áður hefur tíðkast eftir að gjaldeyrishöftum verður aflétt og í því samhengi verður Norræni markaðurinn án efa mikilvægur. Okkar markmið var að finna og gera samstarfssamning við besta eignastýringaraðilann á Norðurlöndunum og þar kom DnB NOR Asset Management aftur og aftur upp á okkar greiningarlistum, enda margverðlaunaður eignastýringaraðili," segir Stefán Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eignastýringar Íslandsbanka.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira