Misstum málverkin og sitjum uppi með tvöfalt söluverð bankanna Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 1. desember 2010 18:26
Það voru ekki bara málverkin sem fóru fyrir lítið við einkavæðingu Landsbankans, segir fjármálaráðherra. Ríkið situr uppi með meira en tvöfalt hærri skuld en það fékk fyrir söluna á helmingshlut í bankanum á sínum tíma. Tugir milljarða vegna ríkisábyrgða falla nú á ríkið. Meirihluti fjárlaganefndar lagði það til í gær að ríkisábyrgðir frá gömlu bönkunum upp á 24 milljarða króna verði yfirteknar af ríkinu. Þessar skuldbindingar eru þannig til komnar að við einkavæðingu bankanna tóku þeir yfir skuldbindingar sem voru ríkistryggðar. Þetta eru að mestu leyti skuldabréf sem gefin voru út á markaði. Kaupendur þeirra, m.a. lífeyrissjóðir, höfðu keypt skuldabréfin með ríkisábyrgð og því var hún ekki afnumin við einkavæðinguna. Við hrunið féllu skuldbindingarnar svo á ríkissjóð sem hefur síðan þá greitt af þeim. Í upphafi voru þessar skuldbindingar vel yfir þrjátíu milljarðar en um mitt þetta ár námu þær 28,8 milljörðum. Langstærstur hluti þeirra kom frá Landsbankanum eða 26,6 milljarðar, Kaupþing var svo með 1,8 milljarð og Glitnir með um 400 milljónir. Samson, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga og þá Magnúsar Þorsteinssonar, keypti 45,8 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum í árslok 2002 á 11,2 milljarða króna. Skuldin sem situr eftir hjá ríkissjóði, að frátöldum öðrum skuldum svo sem Icesave, er því rúmlega tvöfalt hærri en fékkst við einkavæðingu bankans. Stóru hluthafarnir fengu þó sitt á meðan allt lék í lyndi en á meðan feðgarnir voru kjölfestufjárfestar í bankanum námu arðgreiðslur til hluthafa um 10 milljörðum, þar af fékk félag feðganna um fjóran og hálfan milljarð. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir söluverð bankans hafa farið fyrir lítið og meira en það. Búið er að gera kröfur á gömlu bankanna en óvíst er hvað fæst upp í þær. Það er því ljóst að tugir milljarða falla á ríkið.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira