Verðbólguvæntingar stjórnenda lækka nokkuð 1. desember 2010 12:00
Verðbólguvæntingar stjórnenda hjá stærstu fyrirtækjum landsins hafa lækkað nokkuð undanfarið samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Seðlabankann í september síðastliðnum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig gerðu forsvarsmenn fyrirtækja ráð fyrir að verðbólga næstu tólf mánaða yrði 2,5%, eða í verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Á sama tíma fyrir ári bjuggust þeir við að árstaktur verðbólgu yrði 4%. Það að stjórnendur vænti nú minni verðbólgu kemur ekki á óvart enda í takti við þá þróun sem verið hefur og horfur eru um. Nú í nóvember mældist verðbólgan 2,6% og hefur hún ekki verið minni síðan í apríl 2004. „Jafnframt teljum við og aðrir sem gera opinberar verðbólguspár að verðbólgan verði hófleg næstu misserin og spáum við t.d. 2,3% hækkun vísitölu neysluverðs yfir næsta ár," segir í Morgunkorninu. Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur einnig lækkað verulega frá því í fyrra en álagið endurspeglar að hluta verðbólguvæntingar fjárfesta, þó ýmsir fleiri þættir spili þar inn í. Nú þegar þetta er ritað (kl. 09:30) stendur álagið í 1,4% til þriggja ára og í 2,5% til níu ára. Á sama tíma í fyrra var verðbólguálagið til þriggja ára 2,9% en til níu ára 4,0%.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira