Nýsköpun eykur sölu fisks til breskra neytenda 19. júlí 2010 11:45 Íslensk ýsuflök með sinnepsdressingu.
Viðskiptavinir stærstu smásölukeðju Bretlands eru yfir sig ánægðir með nýja fiskrétti frá Icelandic Group. 55% aukning í sölu fiskrétta er á milli ára í verslunum verslunarkeðjunnar Tesco í Bretlandi. Tilkoma nýrrar vörulínu frá íslenska fiskframleiðandanum Icelandic Group hefur stóraukið sölu fiskrétta hjá verslunarkeðjunni Tesco í Bretlandi. Fréttastofan IntraFish fjallar um þetta í forsíðufrétt á vefsíðu sinni undir fyrirsögninni „Tesco delighted with saucy brand". Tesco, sem er stærsta smásölukeðja Bretlands, fylgist náið með því hvernig kauphegðun viðskiptavina sinna þróast. Nýju fiskréttirnir frá Icelandic Group komu á markað í janúar síðastliðnum undir nafninu „The Saucy Fish Co" og hafa umbúðirnar og nýstárlegar bragðtegundir slegið í gegn hjá breskum neytendum. Nýjustu tölur frá Tesco (sem ná frá mars á þessu ári fram í júní) sýna 55% aukningu milli ára í sölu fiskrétta og þakka yfirmenn verslunarkeðjunnar þetta tilkomu nýju fiskréttanna frá Icelandic Group. Saucy Fish fiskréttalínan var þróuð með aðstoð svokallaðra rýnihópa þar sem sjálfboðaliðar voru spurðir fjölda spurninga um fiskneyslu sína, ólíkar bragðtegundir, eldunaraðferðir og umbúðir. Vörulínan hlaut í apríl síðastliðinn hin eftirsóttu Seafood Prix d'Elite verðlaun sem veitt eru á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Brussel. Verðlaunin eru veitt árlega og er verðlaunahafinn valinn úr hundruðum nýrra fiskrétta. Einnig hafa umbúðirnar utan um fiskréttina hlotið bresk verðlaun sem bestu umbúðir ársins 2010 fyrir kjöt- og fiskrétti. Saucy Fish fiskréttunum er pakkað í Seachill-verksmiðjum Icelandic Group í Grimsby. Icelandic Group er í eigu eignarhaldsfélagsins Vestia, sem aftur er í eigu Landsbanka Íslands. Rekstur fyrirtækisins hefur gengið vel. Hagnaður af reglulegri starfsemi (fyrir skatta) nam 3 milljörðum króna á síðasta ári. Skuldir voru greiddar niður um 12 milljarða króna og heildarvelta fyrirtækisins nam jafnvirði 180 milljarða króna sem þýðir að fyrirtækið er eitt hið umsvifamesta í íslenskri eigu nú um stundir.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira