Íslenskt tölvukerfi notað í kauphöllinni í London 28. júlí 2010 11:20
Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software ehf. hefur á skömmum tíma selt eigið tímaskráningar- og verkbókhaldskerfi til 38 landa með aðstoð netsins, þar á meðal til fjölmargra stórfyrirtækja og stofnana, svo sem til kauphallarinnar í Lundúnum og Deutsche bank. Einnig hefur kauphöllin í New York og örgjörvaframleiðandinn Intel hlaðið kerfinu niður til reynslu.Í tilkynningu segir að tímaskráningarkerfið, sem nefnist Tempo, er viðbót við verkbeiðna- og þjónustukerfið JIRA frá ástralska hugbúnaðarfyrirtækinu Atlassian og gerir notendum kleift að tengja við tímaskráningar og koma í veg fyrir tvískráningar beiðna og reikninga.Kerfið var upphaflega þróað til nota innanhúss en ákveðið var að prófa sölu í gegnum netið til reynslu á síðasta ári þegar verkefnum fækkaði á heimamarkaði. „Árangurinn lét ekki á sér standa. Lausnin hefur fengið afar góða dóma hjá notendum og á fyrstu mánuðum prófuðu fyrirtæki á borð við Apple, Sony í Evrópu og bandaríski netrisinn America Online lausnina auk fyrirtækja hér á landi. Viðskiptavinir nú eru tæplega 200 talsins í 38 löndum," segir Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri TM Software.Ágúst segir að mestur áhugi sé frá fyrirtækjum í Þýskalandi, Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu. „Við höfum einungis kynnt lausnina í gegnum netið og jákvæð viðbrögð hafa skilað sér í því að sala á Tempo hefur tvöfaldast á síðustu 2 mánuðum."Ágúst segir að árangur í sölu á Tempo sé í takt við afkomu félagsins, sem sé jákvæð og umfram áætlanir það sem af er þessu ári. „Tekjur fyrirtækisins hafa vaxið um 13% miðað við síðasta ár og má auknar tekjur fyrirtækisins reka til betri verkefnastöðu og aukinnar eftirspurnar eftir vörum þess."
Mest lesið Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira