Álútflutningur aldrei verið meiri í krónum talið 30. apríl 2010 12:12
Aukið verðmæti útflutnings milli mánaða á sér rót í báðum helstu útflutningsvörum Íslands, sjávarafurðum og áli. Álútflutningur nam 22,6 milljörðum kr. og hefur hann aldrei verið meiri í krónum talið í einum mánuði. Útflutningur sjávarafurða nam 20,5 milljörðum kr. í mars og hefur hann ekki verið meiri í krónum talið frá október síðastliðnum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um vöruskiptin í mars en Hagstofan birti tölur um þau í morgun. Í Morgnkorninu segir að álverð á heimsmarkaði sótti verulega í sig veðrið á seinni hluta síðasta árs. Við lok markaða í gær kostaði áltonnið u.þ.b. 2.200 dollara og er álverð nú á svipuðum slóðum og haustið 2007 og hér um bil 70% hærra en það fór lægst fyrir rúmu ári. Greiningin segir að áfram mun væntanlega verða verulegur afgangur af vöruskiptum við útlönd, enda ríkir enn hægagangur í innlendu hagkerfi á sama tíma og skilyrði útflutningsgreina eru um margt hagstæð. Við gjaldeyrisinnflæði vegna þessa afgangs mun svo næstu mánuðina líklega bætast við töluvert innflæði vegna afgangs af þjónustujöfnuði. Mikil árstíðarsveifla er í þjónustujöfnuðinum vegna árstíðabundinna ferðamannatekna. Setji Eyjafjalljökull ekki frekara strik í þann reikning en orðið er gæti gjaldeyrisflæði vegna vöru- og þjónustuviðskipta þannig þokað krónunni frekar í styrkingarátt fram undir haustið.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira