Kröfuhafar Þorgils tapa 600 milljónum 8. nóvember 2010 12:48 Þorgils Óttar Mathiesen.
Aðeins 1,8 milljónir kr. fengust upp í kröfur í þrotabú C22 sem var í eigu Þorgils Óttars Mathiesen fyrrum forstjóra Sjóvár. Þar með töpuðu kröfuhafar nær 600 milljónum kr. á þrotabúinu en stærsti kröfuhafinn var Íslandsbanki. Fréttir af skuldamálum Þorgils Óttars vöktu mikla athygli fyrr á árinu. Félagið C22 fékk 600 milljón króna kúlulán sem Þorgils notaði í því sem kalla mætti flókinni eignafléttu. Þegar mest var árið 2008 námu skuldir C22 um sautján hundruð milljónum króna; helstu eignir félagsins var hlutur í Glitni og eftir krókaleiðum, fasteignafélaginu Klasa. Þannig var ein stærsta eign C22 dótturfyrirtækið verslun Einars Þorgilssonar en verslun Einars Þorgilssonar átti þriðjungs hlut í fyrirtækinu Sigla. Sigla var svo eini eigandi fasteignafélagsins Klasa, sem á meðal annars hlut í Háskólavöllum á Reykjanesi, skrifstofum Morgunblaðsins í Hádegismóum og leiguíbúðum á Keflavíkurflugvelli. C22 seldi svo allt hlutabréf sitt í verslun Einars Þorgilssonar árið 2008, en hana á Þorgils að mestu sjálfur. Auk þess færði hann eignarhlut sinn úr Siglu yfir í verslun Einars Þorgilssonar og skildi því þannig milli eigna sinna og skulda. Aðeins 1,8 milljón fékkst upp í skuld eignarhaldsfélagsins C22 við Íslandsbanka þegar félagið var úrskurðað gjaldþrota á dögunum. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að 0,3 prósent eða um 1,8 milljón voru greiddar upp í almennar kröfum. Eftir stóðu lýstar kröfur að upphæð 598 milljónir í eignarhaldsfélaginu C22 sem ekkert fæst upp í.
Mest lesið Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Viðskipti innlent BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Atvinnuleysi minnkar lítillega Viðskipti innlent Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Viðskipti innlent Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Sjá meira