Lánveitingar Byrs til sérstaks saksóknara Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 10. mars 2010 18:29
Forsvarsmenn sparisjóðsins Byrs hafa sent skýrslu um lánveitingar sparisjóðsins frá árinu 2005 til sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitsins. Þeir óska eftir því að athugað verði hvort tilefni sé til formlegrar rannsóknar á meintum brotum fyrrverandi stjórnarmanna og lykilstarfsmanna Byrs. Stjórnarmaður, sparissjóðsstjóri og innri endurskoðandi Byrs funduðu í gær með sérstökum saksóknara um leið og þeir afhentu 90 síðna skýrslu um málefni sjóðsins. Skýrslan fór líka til Fjármálaeftirlitsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu snýst skýrslan að mestu leyti um lánveitingar sjóðsins til nokkurra fyrirtækja og einstaklinga, þar á meðal marga að stærstu eigendum sjóðsins. Athugasemdirnar snúast að mestu leyti um hvernig var staðið að lánveitingunum auk þess sem efast er um veðin hafi verið nægjanleg á þeim tíma sem lánin voru veitt. Mun skýrslan ná aftur til ársins 2005. Þá voru þeir sparisjóðir sem nú mynda Byr sjálfstæðir. Þ.e. Sparisjóður Vélstjóra, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Norðlendinga. Nýir forsvarsmenn Byrs hafa nú óskað eftir að embætti sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitið fari yfir skýrsluna og athugi hvort tilefni sé til að hefja formlega rannsókn á meintum brotum fyrrverandi stjórnarmanna og lykilstarfsmanna Byrs. Vonast er til að með þessu sé hægt að endurheimta hluta af þeim fjármunum sem hafa tapast undanfarin ár.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira