Hægari endurreisn 23. nóvember 2010 18:36
Á sama tíma og skuldatryggingarálag á ríkissjóð hefur lækkað mikið eru horfur um bata í efnahagslífinu að versna. Hagstofan spáir þriggja prósenta samdrætti á þessu ári og því að endurreisnin verði hægari en áður var gert ráð fyrir. Margt bendir til að markaðurinn hafi vaxandi trú á því að ríkissjóður muni ráða við háar skuldbindingar sínar. Skuldatryggingarálag mælir hvað það kostar fjárfesta að kaupa tryggingu gegn því að útgefandi viðkomandi skuldabréfs, lántakinn, geti ekki staðið í skilum. Í þessu samhengi má nefna að skuldatryggingarálag á bankana rauk upp úr öllu valdi á árinu 2008 - þegar halla fór undan fæti í bankakerfinu. Eftir að skuldatryggingarálag á ríkissjóð náði hámarki í október 2008 hefur það farið hægt og rólega lækkandi, með nokkrum undantekningartímabilum. Álagið hefur lækkað nær stöðugt það sem af er ári og stendur í dag í 275 punktum. Til samanburðar má nefna að álagið á Grikkland nemur yfir 1000 punktum og álagið á Írland stendur í rúmum 500 punktum. Á sama tíma og skuldatryggingarálagið hefur lækkað og krónan styrkst hafa horfur um hagvöxt á næsta ári versnað. OECD og hagstofan spá því nú að hagvöxtur verði minni en áður var talið og samdrátturinn í ár meiri. Með öðrum orðum er talið að kreppan verði dýpri og endurreisnin hægari. Í endurskoðaðri þjóðhagsspá Hagstofunnar er því spáð að landsframleiðsla dragist saman um 3% í ár og að hún vaxi um tæp 2% árið 2011. Í júní spáði hagstofan rúmlega 3% hagvexti á næsta ári. Í spánni segir að fjárfestingar hafi haldið áfram að dragast saman á þessu ári. Óvissuþættir í spánni eru meðal annars að heimili og fyrirtæki dragi áfram úr útgjöldum vegna skuldavanda og að kjarasamningar fari úr böndunum.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira