Viðskipti innlent

Landflutningar styðja við Jólaaðstoðina 2010

Fyrirframgreiðsla upp á tvær milljónir var afhent í dag.
Fyrirframgreiðsla upp á tvær milljónir var afhent í dag. Mynd/Hreinn Magnússon.
Landflutningar hafa ákveðið að láta allt flutningsgjald þeirra pakka sem fluttir eru fyrir jólahátíðina renna óskipt til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Jólaaðstoðar 2010. Gjaldið er 890 krónur fyrir hvern pakka og vill fyrirtækið með þessu leggja sitt lóð á vogarskálarnar til hjálpar þeim sem minna mega sín, eins og segir í tilkynningu.

Fyrirframgreiðsla að upphæð tvær milljónir króna var afhent formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í dag. „Á hverju ári eru nokkur þúsund jólapakkar fluttir landshlutanna á milli með bílum Landflutninga og fannst okkur tilvalið að taka höndum saman við viðskiptavini okkar og létta Mæðrastyrksnefnd róðurinn með því að færa ykkur tekjurnar af jólapakkaflutningunum," sagði Jörundur Jörundsson, framkvæmdastjóri Landflutninga, þegar hann færði Ragnhildi G. Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, fyrirframgreiðsluna. Framlagið verður afhent að fullu þegar uppgjör liggur fyrir í janúar.

Ragnhildur þakkaði fyrir velvild Landflutninga og viðskiptavina félagsins og sagði að það munaði heldur betur um þetta framlag til jólaaðstoðarinnar. „Fyrirframgreiðslan ein er drjúgur skildingur upp í jólahangikjöt handa þeim 4-5 þúsund fjölskyldum sem við eigum von á að leiti eftir aðstoð okkar fyrir jólin, svo þetta er sannkölluð gleðigjöf," sagði Ragnhildur. Hún sagði jafnframt að Landflutningar væru með fyrstu fyrirtækjum landsins til að svara ákalli hjálparsamtakanna um stuðning við jólaaðstoðina og vonandi myndu fleiri fylgja þeirra fordæmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×