Viðskipti innlent

Hagstofan: Horfur á lítilsháttar samdrætti í útflutningi

Horfur eru á lítilsháttar samdrætti í útflutningi á líðandi ári. Það má að hluta til rekja til áhrifa frá árinu 2009 en þá voru fluttar út flugvélar fyrir tæpa 23 milljarða króna.

Þetta kemur fram í endurskoðaðri þjóðhagsspá Hagstofunnar sem birt hefur verið á vefsíðu hennar. Þar segir að á næstu árum er hins vegar gert ráð fyrir hægfara aukningu útflutnings, þrátt fyrir raungengi sem er lágt í sögulegu samhengi, en það ætti að styðja við útflutningsgreinar.

Ástæðuna má einkum rekja til þess að stærstu útflutningsgreinarnar, sjávarútvegur og stóriðja, búa við framleiðslutakmarkanir sem koma í veg fyrir að unnt sé að auka magn framleiðslunnar á skömmum tíma.

Staða fiskistofna er háð náttúrulegum skilyrðum og aukning á framleiðslugetu stóriðju tekur nokkur ár. Þrátt fyrir litla magnaukningu í útflutningi á sjávarafurðum og stóriðju er hins vegar gert ráð fyrir að verðmæti útflutnings verði hagstætt á tímabilinu. Hátt verð er á útflutningsafurðum og lágt gengi hefur í för með sér að meira virði fæst í krónum talið.

Árið 2011 er reiknað með 1,0% vexti útflutnings en 2,0% vexti árið 2012 og 2,5% vexti árið 2013. Þrátt fyrir þessar lágu vaxtartölur er í spánni gert ráð fyrir mikilli grósku í þjónustuútflutningi og útflutningi á öðrum vörum en frá sjávarútvegi og stóriðju.

Atvinnugreinar á borð við ferðaþjónustu og lyfjaframleiðslu búa ekki við sömu höft á framleiðslugetu og stóru útflutningsatvinnuvegirnir og geta því vaxið hratt meðan raungengi er lágt. Undir lok spátímabilsins, árin 2014-2015, er hins vegar gert ráð fyrir nokkurri aukningu útflutnings, vegna aukinnar álframleiðslu.

Reiknað er með að innflutningur árið 2010 aukist um 2,7% að magni til. Aukninguna má fyrst og fremst rekja til fleiri utanlandsferða Íslendinga sem kemur fram í auknum þjónustuinnflutningi. Árið 2011 er spáð 2,0% vexti innflutnings en árið 2012 og 2013 er hins vegar spáð í kringum 6% vexti hvort árið fyrir sig en það endurspeglar aukna fjárfestingu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×