Viðskipti innlent

Sveitarfélögin skulda ÍLS 44 milljarða, lítið afskrifað

Sveitarfélög landsins skulda Íbúðalánasjóði (ÍLS) um 44 milljarða króna vegna kaupa á tæplega fjögur þúsund eignum til félagslegra nota á undanförnum árum.

Þetta kemur fram í svari félagsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknar. Tæplega 7,5 milljónir kr. eru í vanskilum vegna þessara kaupa.

Eftir kjördæmum er nær helmingur af skuldinni eða tæpir 21 milljarður króna í Reykjavík suður og norður. Næst kemur Suðvesturkjördæmi með skuld upp á rúmlega 8 milljarða króna. F

rá árinu 2002 hefur Íbúðalánasjóður afskrifað 230 milljónir króna af þessum skuldum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×