Viðskipti innlent

Kínverjum heimilt að eiga í Stormi

Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur skilað ráðherra áliti vegna kaupa Nautilus Fisheries Ltd. á 43,75% hlut í Stormi Seafood ehf. sem nefndin hefur haft til umfjöllunar. Nautilus er í eigu kínverskra aðila og því voru áhöld um hvort eignarhluturinn samræmdist lögum um erlenda fjárfestingu.

Það er hinsvegar mat nefndarinnar að kaupin gangi ekki gegn ákvæðum laga um erlenda fjárfestingu. „Í lögum nr. 34/1991 kemur fram að skilyrði fyrir erlendu eignarhaldi í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum eru að slíkt fyrirtæki sé undir íslenskum yfirráðum og beint og óbeint eignarhald erlends aðila megi vera uppsafnað allt að 49%," segir í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

„Einnig er skilyrði að meirihluti stjórnar fyrirtækisins sé búsettur á Íslandi svo og framkvæmdastjóri þess. Þessum skilyrðum er fullnægt varðandi hið erlenda eignarhald í Stormi Seafood ehf," segir einnig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×