Már myndi ekki taka við 400 þúsund króna launahækkun Sigríður Mogensen skrifar 3. maí 2010 19:32 Már Guðmundsson segir að málið snúist um hversu mikið laun hans lækki. Mynd/ Stefán.
Forsætisráðherra segir að engin fyrirheit hafi verið gefin um launakjör Seðlabankastjóra. Forseti ASÍ segir að tillaga um fjögur hundruð þúsund króna launahækkun bankastjórans sé ekki í samræmi við neitt sem þjóðin sé að glíma við. Seðlabankastjórinn segist sjálfur aldrei myndu taka við slíkri launahækkun. Morgunblaðið sagði frá því í dag að bankaráð Seðlabankans hafi til umfjöllunar tillögu um að hækka laun seðlabankastjóra um 400 þúsund krónur á mánuði. Eftir því sem fréttastofa kemst næst fengi Már þannig um 1,3 milljónir króna án hækkunar en laun hans verða 1,7 milljónir nái tillagan fram að ganga. „Ég verð nú að viðurkenna að þetta kom mér fyrst og fremst í opna skjöldu að þetta væri til umræðu og ekki í neinu samræmi við það vandamál sem þjóðin er að glíma við að fara að brydda upp á svona gríðarlegum hækkunum hjá fólki sem er þegar á mjög háu kaupi," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Gylfi segist vona að bankaráð Seðlabankans leggi tillöguna til hliðar. Hún sé ekki gott innlegg í það sem þjóðin er að glíma við. Forsætisráðherra segist ekki hafa gefið nein loforð eða fyrirheit um væntanleg launakjör Seðlabankastjóra, enda slíkt ekki á hennar færi. Að mati Jóhönnu gengur ekki við núverandi aðstæður að laun Seðlabankastjóra eða annarra forstöðumanna opinberra stofnanna séu úr takti við það sem þegar hefur verið ákveðið. Már Guðmundsson segir að sér finnist þessi umræða skrítin. „Ég hef ekki frétt af því að þetta væri í farvatninu, enda myndi ég ekki taka á móti henni ef hún byðist," segir Már. Már segir að málið snúist um það að ef ákvörðun kjararáðs standi óbreytt lækki laun hans um 24%. Bankaráð hafi nú til skoðunar önnur fjárhagsleg mál og kjaramál seðlabankastjóra. Frá sínum sjónarhóli snúist þetta um hversu langt launin lækka.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira