Keyptu Límtré Vírnet á 720 milljónir 18. nóvember 2010 15:00
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hefur selt iðnfyrirtækið Límtré Vírnet ehf. til Uxahryggja ehf. Söluverð hlutafjár Límtrés Vírnets er 120 milljónir króna en þar að auki nema vaxtaberandi skuldir um 600 milljónum króna.Samtals nemur kaupverðið því 720 milljónum kr. Í tilkynningu segir að hluthafar í Uxahryggjum séu átta, þ.á m. Fjárfestingarfélagið Stekkur ehf. sem er í eigu Kristins Aðalsteinssonar sem á 45% hlut, Bingó ehf. sem er í eigu Hjörleifs Jakobssonar sem á 35% hlut, en aðrir hluthafar, þ.e. Pétur Geirsson, Guðmundur Magnússon og Eignarhaldsfélag Suðurlands eiga þar minni hluti ásamt Bláskógarbyggð, Borgarbyggð, og Hrunamannahreppi. Uxahryggir hafa í hyggju að auka hlutafé Límtrés Vírnets og stefnt er að því að laða að félaginu fleiri heimamenn. Ekki eru fyrirhugaðar breytingar á starfsemi félagsins og verða aðalstöðvar þess áfram í Borgarnesi. Starfseiningar Límtrés Vírnets, Vírnet í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleiningar í Reykholti, voru hluti af samstæðu BM Vallár hf. sem tekin var til gjaldþrotaskipta í maí 2010. Rekstrarfélag sem Landsbankinn stofnaði tók við rekstri fyrirtækisins 25. maí og þá lýsti bankinn því yfir að hann hygðist selja reksturinn innan 6 mánaða. Með stofnun rekstrarfélagsins tókst Landsbankanum að tryggja 65 störf og var flestöllum starfsmönnum boðið starf í hinu nýja félagi. Límtré Vírnet er öflugt fyrirtæki í framleiðslu og þjónustu fyrir innlendan byggingariðnað. Það byggir á rekstri gamalgróinna fyrirtækja, Vírneti sem var stofnað 1956 og þjónað hefur íslenskum byggingamarkaði óslitið frá þeim tíma og Límtré sem stofnað var 1982. Aðalstöðvar Límtrés Vírnets eru í Borgarnesi og þar eru framleiddar klæðningar, áfellur og saumur, auk þess sem þar er blikksmiðja, járnsmiðja og rafmagnsverkstæði. Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans lýsir ánægju með söluna: ,,Það er mjög ánægjulegt hversu vel hefur tekist að vinna úr erfiðri stöðu sem alltaf kemur upp þegar fyrirtæki verða gjaldþrota. Það er trú okkar í Landsbankanum að sala þessi og aðkoma heimamanna að rekstrinum muni hafa jákvæð áhrif á félagið og byggðalögin þar sem það starfar," segir Steinþór.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira