Bætur skertar og álögur auknar 18. nóvember 2010 19:17 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Mynd/Daníel Rúnarsson
Bætur ýmis konar verða skertar og álögur á bifreiðar, áfengi og tóbak og fleira verða auknar í fjárlögum næsta árs. Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna mun lækka um hálft prósent vegna þessa Fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til ráðstafana í ríkisfjármálum í dag, en þar er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs á næsta ári aukist um 11 milljarða króna með lækkun bóta eins og vaxta- og barnabóta og með gjöldum ýmis konar. Tekjuskattur einstaklinga og virðisaukasktattur hækka ekki. Dæmi um ráðstafanir til að auka tekjur eru: - Vörugjald á áfengi og tóbak hækkar um 600 milljónir - Vörugjald á áfengi og tóbak í fríhöfnum 300 milljónir - Fjármagnstekjuskattur á einstaklinga hækkar úr 18 í 20% og skilar 1,5 milljarði - Erfðafjárskattur hækkar úr 5 í 10 % og skilar 1 milljarði - Kolefnisgjald hækkar og skilar 1 milljarði - Lækkun barnabóta skilar 1,3 milljörðum Tekjutenging barnabóta verður aukin þannig að þeir tekjuhærri fá minni eða engar bætur. Lækkun vaxtabóta skilar 270 milljónum. Tekjutengin vaxtabóta verður einnig aukin og reiknaðar vaxtabætur almennt lækkaðar um 8 prósent. Þá verða bensín- og olíugjöld hækkuð til samræmis við verðlag sem og ýmsir aðrir svo kallaðir krónutöluskattar, eins og útvarpsgjald sem hækkar úr 17.200 krónum á ári í 17.900 krónur. Ekki búið að útfæra lækkun fæðingarorlofs Lækkun framlaga til Fæðingarorlofssjóðs skilar einum milljarði. Ekki er búið að útfæra hvernig lækkun fæðingarorlofs verður framkvæmd. Þá munu bætur almannatrygginga ekki hækka með verðlagi sem spari ríkissjóði 183 milljónir króna á ári. Auknar heimildir til úttektar séreignarsparnaðar á næsta ári munu svo gefa ríkissjóði þrjá milljarða í skatttekjur. Samtals aukast tekjur ríkissjóðs með þessum aðgerðum um 11 milljarða milli ára og metur fjármálaráðuneytið að þessar hækkanir muni lækka ráðstöfunartekjur heimilanna að meðaltali um 0,5 prósent á næsta ári.Mun tvímælalaust skila sér Fjármálaráðherra segir að nú greiði ríkissjóður 15-17 prósent af öllum tekjum sínum í vexti. Með þessu fjárlagafrumvarpi séu erfiðustu áfangarnir að baki. Mikilvægt sé að ná skuldunum niður og koma jafnvægi á ríkisbúskapinn „Það mun tvímælalaust skila sér til baka á komandi árum í traustari forsendum ríkisbúskaparins, minni vaxtakostnaði og betri hagvaxtarforsendum ef við náum hratt tökum á fjármunum hins opinbera. Það sýnir reynsla allra sem hafa gengi í gegnum þessa hluti," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira