Spáir að verðbólgan fari undir 2% í janúar 22. desember 2010 11:44
Greining Arion banka hefur endurmetið verðbólguspá sína fyrir janúar þar sem Hagstofan hefur „dregið kanínu" upp úr hatti sínum. Nú gerir greiningin ráð fyrir að verðbólgan í janúar verði undir 2%. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að í fyrri verðbólguspánni var gert ráð fyrir u.þ.b. 0,4% lækkun verðlags í janúar. „Nú gerum við hinsvegar ráð fyrir í kringum 0,8% verðlækkunar í janúar og mun því tólf mánaða verðbólga fara niður fyrir 2%," segir í Markaðspunktunum. „Verðbólguhorfur eru því afar jákvæðar fyrir næsta vaxtaákvörðunarfund Seðlabankans sem er settur í febrúar. Þrátt fyrir hressilegar útsölur, -0,9% til lækkunar, þá gerum við á móti ráð fyrir 0,3-0,45% áhrifum uppá við vegna skatta- og gjaldskrárhækkana hins opinbera en enn er hinsvegar nokkur óvissa um áhrif af gjaldskrárhækkunum sveitarfélaganna." Síðan segir: „Það sem við vissum ekki þá var að Hagstofan mun í janúar taka útvarpsgjald, hét afnotagjald, út úr vísitölu neysluverðs með 0,4% áhrifum til lækkunar verðlags. Þessi lækkun verður því hrein viðbót við útsöluáhrifin og gerum við því ráð fyrir um 0,8% lækkun VNV í janúar, en ekki 0,4% lækkun eins og fyrri spá okkar gerði ráð fyrir." Ástæðan fyrir þessari breyttu aðferðarfræði er sú að þegar útvarpsgjaldið var tekið upp árið 2009 þá var það kynnt sem breyting á innheimtuformi og voru tekjurnar áfram eyrnamerktar RÚV. Því var afnotagjaldinu haldið inni í VNV. Í útskýringum Hagstofunnar er bent á að á árunum 2009 og 2010 hafi innheimtar tekjur af gjaldinu runnið nær óskert til RÚV. Hinsvegar hefur þessu fyrirkomulagi verið breytt í fjárlögum 2011 - gjaldið hefur verið hækkað en á hinn bóginn var fjárveiting til RÚV skert milli ára. Því lítur Hagstofan nú á útvarpsgjaldið sem beinan skatt. „Því má segja að gjaldskrárhækkun hins opinbera leiði með beinum hætti til lægri verðbólgu eins einkennilegt og það hljómar. Því er kannski áhugvert að velta fyrir sér hvort Hagstofan geti galdrað upp fleiri kanínur til að vega upp á móti öðrum skatta- og gjaldskrárhækkanir hins opinbera," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira