Bílar í stað eldri bíla, segir forstjóri Icelandair Group Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. desember 2010 13:13 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group segir að þeir bílar sem hafi bæst við bílaflota starfsmanna á þessu ári séu í nánast öllum tilvikum endurnýjun á leigusamningum og að bílarnir hafi komið í stað eldri bíla. Hann segist íhaldssamur og varfærinn stjórnandi þegar kemur að kjörum eins og bílafríðindum. Fréttastofa greindi frá því í gær að frá júní á þessu ári og til þessa dags hefðu ellefu nýir bílar verið keyptir hjá Icelandair Group og dótturfélögum þess til handa starfsmönnum samkvæmt samantekt Stöðvar 2 úr Ökutækjaskrá. Eingöngu voru teknir saman jeppar og einkabílar starfsmanna, ekki vinnubílar eins og sendiferðabílar, pallbílar og smábílar. Þá var öllum nýjum bílum í Ökutækjaskrá fyrir júní 2010 sleppt í umfjölluninni og samantektin var eingöngu miðuð við það tímamark er Framtakssjóður Íslands fjárfesti í Icelandair Group. Jafnframt sagði Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í viðtali í gær að um hafi verið að ræða endurnýjun á leigusamningum sem hefðu fallið úr gildi og ýmist hafi menn náð að semja áfram um leigu eða kaup á bílunum. Hann hafnaði nýskráningum á bifreiðum.Bílarnir endurnýjaðir Í upplýsingum úr Ökutækjaskrá sem Stöð 2 hafði undir höndum var ekki sundurliðun á því hvort um tímabundna eign var að ræða, eða kaupleigu, en ekki voru gerðar athugasemdir við þá bíla sem höfðu bæst við og Stöð 2 hafði til umfjöllunar. Björgólfur Jóhannsson lét hins vegar gera sérstaka athugun á þeim bílum sem fjallað var um og segir að komið hafi í ljós að í flestum tilvikum hafi verið um endurnýjun á kaupleigusamningum að ræða. Hann segist sjálfur varfærinn stjórnandi þegar komi að fríðindum af þessu tagi og áréttar að engin tengsl séu milli þess að Framtakssjóður Íslands keypti í félaginu og endurnýjuðum bílafríðindum starfsmanna. „Þetta er í öllum tilvikum þannig að við erum að endurnýja bíla, ýmist erum við að semja við kaupleigurnar um áframhaldandi leigu og eða kaup. Eða við erum að endurnýja bíla sem voru að renna út á kaupleigu. Reyndar hefur sá markaður breyst mikið og erfitt við að eiga. En það eru engir nýir bílar keyptir hér inn og það er engin fjölgun á bílum. Það sem meira er að rekstrarkostnaður er hér að lækka hvað varðar eignarhaldskostnað og slíkt," segir Björgólfur.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira