Landsbankinn kaupir meirihluta í Rose Invest hf. 22. desember 2010 13:05
Landsbankinn hefur keypt 51% hlutafjár í Rose Invest hf. sem er rekstrarfélag verðbréfasjóða í eigu Sigurðar B. Stefánssonar og Svandísar Rúnar Ríkarðsdóttur. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsstofnana og niðurstöður áreiðanleikakönnunar. Í tilkynningu segir að starfsleyfi Rose Invest tekur til reksturs verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu og fjárfestingarráðgjöf. Rose Invest hf. starfrækir verðbréfasjóðinn River Rose og fagfjárfestasjóðinn Purple Rose. Sjóðir Rose Invest verða reknir áfram á sama hátt og verið hefur og Rose Invest verður rekið sem sjálfstætt og óháð félag í eigu Landsbankans. Landsbankinn hyggst styrkja starfsemi sína á sviði eigna- og sjóðastýringar og það er mat stjórnenda bankans að starfsemi Rose Invest samræmist vel þeim markmiðum sem Landsbankinn hefur sett sér um þjónustu við viðskiptavini á sviði sjóðastýringar. Á fyrri hluta næsta árs koma báðir eigendur Rose Invest, þau Sigurður og Svandís, til starfa á Eignastýringarsviði Landsbankans. Þá mun rekstur sjóða Landsvaka hf. færast undir Rose Invest hf. sem fær nafnið Landsbréf og verður óháð dótturfélag Landsbankans. Lögð verður rík áhersla á að hagsmunir eigenda hlutdeildarskírteina í sjóðum beggja félaga séu tryggðir og að Landsvaki hf. geti staðið við allar sínar skuldbindingar. Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Eignastýringar Landsbankans telur kaupin mikilvægan þátt í þeirri framtíðaruppbyggingu sem Landsbankinn vinnur að í starfsemi sinni.,,Áratugareynsla og þekking starfsmanna Rose Invest hf. mun nýtast bankanum mjög vel í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í eignastýringu bankans en Landsbankinn ætlar sér að ná miklum árangri á því sviði," segir Hrefna. „Við sjáum mikil tækifæri á þessum tímamótum og hlökkum til samstarfs við sterkan hóp hjá Eignastýringu Landsbankans. Ljóst er að viðskiptavinir Rose Invest hf. munu hafa ávinning af því að tengjast traustum innviðum Landsbankans," segja Sigurður B Stefánsson og Svandís Rún Ríkarðsdóttir.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira