Tekist á um vexti á fundi Peningastefnunefndar 22. desember 2010 16:29
Nokkur ágreiningur varð milli meðlima Peningastefnunefndar við síðustu vaxtaákvörðun hennar þar sem stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig. Einn nefndarmanna greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um svo mikla lækkun og tveir nefndarmenn höfðu ólíka skoðun en seðlabankastjóri um hve mikið ætti að þrengja vaxtaganginn, það er bilið á milli ólíkra vaxta. Í fundargerð nefndarinnar, sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans segir: „Nefndarmenn ræddu hvort og þá hvernig draga ætti úr sveiflum skammtíma markaðsvaxta og að færa daglánavexti á millibankamarkaði nær miðju vaxtagangs bankans. Með hliðsjón af umræðunni lagði seðlabankastjóri til að vaxtagangurinn yrði þrengdur um 1,0 prósentu, í 2,0 prósentur. Fjórir nefndarmenn studdu tillögu seðlabankastjóra, en einn greiddi atkvæði gegn henni og hélt því fram að engin sjáanleg þörf væri á því að þrengja vaxtaganginn. Viðkomandi nefndarmaður var einnig andvígur framsetningu tillögunnar þar sem hún væri ólík hefðbundinni atkvæðagreiðslu um tiltekna vexti. Nefndarmanninum fannst einnig að ekki hafi verið gefinn nægur tími til að kanna tillöguna til hlítar. Nefndarmenn ræddu þann möguleika að lækka vexti um 0,75 til 1,0 prósentu. Með hliðsjón af umræðunni, mismunandi sjónarmiðum sem fram komu og ákvörðun nefndarinnar að þrengja vaxtaganginn um 1,0 prósentu, lagði seðlabankastjóri til að innlánsvextir (vextir á viðskiptareikningum) yrðu lækkaðir um 0,5 prósentur, í 3,5%; að hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum og vextir á lánum gegn veði til sjö daga yrðu lækkaðir um 1,0 prósentu hvorir, í 4,25% og 4,5% hvorir um sig; og að daglánavextir yrðu lækkaðir um 1,5 prósentur, í 5,5%. Nefndarmenn voru sammála um að tillaga seðlabankastjóra fæli í sér að aðhaldsstig peningastefnunnar í heild minnkaði heldur minna en sem næmi breytingunni á miðju vaxtagangsins, þótt erfitt væri að mæla nákvæmlega breytinguna á aðhaldsstiginu. Fjórir nefndarmenn studdu tillögu seðlabankastjóra, en tveir nefndarmenn hefðu kosið ögn breytta ákvörðun. Af þessum tveimur nefndarmönnum hefði annar heldur kosið 0,25 prósentum minni lækkun á öllum vöxtum Seðlabankans, en hinn hefði heldur kosið 0,5 prósentum minni lækkun innlánsvaxta. Einn nefndarmaður greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra. Þótt þessi nefndarmaður væri sammála því að þrengja vaxtaganginn lagði hann til að vextir yrðu lækkaðir um 0,25 prósentum minna en í tillögu seðlabankastjóra og þannig yrði miðja vaxtagangsins lækkuð um 0,75 prósentur í stað 1,0 prósentu. Peningastefnunefndin telur að enn kunni að vera eitthvert svigrúm til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma. Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið."
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira